Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Guð­mundur Ingi kaupir aftur í Reitum

Read Full Article →

Guð­mundur Ingi Jóns­son, fyrr­verandi stjórnar­maður Reita og einn stærsti einka­fjár­festirinn í félaginu, hefur keypt að nýju í fast­eignafélaginu tæpum tveimur vikum eftir að hann seldi rúm­lega 7,1 milljón hluta fyrir um 870 milljónir króna í kjölfar deilna um stjórnar­for­mennsku. Sam­kvæmt kaup­hallar­tilknningu keypti Kjölur fjár­festingarfélag ehf., sem er í eigu Guð­mundar Inga Jóns­sonar, 750 þúsund hluti í Reitum á genginu 116 krónur á hlut. Kaupin nema því sam­tals 87 milljónum króna. Við­skiptin vekja at­hygli í ljósi þess að Guð­mundur seldi þann 17. mars allan 1,02% eignar­hlut GJ Invest í Reitum á genginu 122 krónur á hlut, eða rúm­lega 7,1 milljón hluta. Sú sala nam um 870 milljónum króna og kom í kjölfar þess að hann dró fram­boð sitt til stjórnar Reita til baka eftir að hafa lýst óánægju með hvernig staðið var að vali á nýjum stjórnar­for­manni. Við söluna í mars kom fram að félög á vegum Guð­mundar Inga hefðu fyrir hana átt sam­tals 5,25% hlut í Reitum. Þar af átti GJ Invest 1,02% hlut, en Kjölur fjár­festingarfélag, sem Guð­mundur á til helminga á móti Þor­láki Trausta­syni, átti 4,2% hlut. Með nýju kaupunum er því ljóst að Guð­mundur er aftur byrjaður að byggja upp stöðu í félaginu, þrátt fyrir söluna í mars. Miðað við fyrri eignar­stöðu og þessi nýju kaup er hann áfram meðal stærri einka­fjár­festa í Reitum. Við­skipta­blaðið greindi frá því í byrjun mánaðar að Guð­mundur, sem tók sæti í stjórn Reita fyrir ári síðan, hefði ákveðið að hætta við að gefa kost á sér til endur­kjörs í stjórn fast­eignafélagsins. Sjá einnig Guð­mundur selur í Reitum fyrir 870 milljónir Guð­mundur, sem sóttist eftir for­mennsku, sagði í bréfi til stærstu hlut­hafa að for­maður til­nefningar­nefndar hefði komið því á fram­færi að Árni Sigur­jóns­son, sem lagt er til að komi nýr inn í stjórnina, skyldi kjörinn stjórnar­for­maður að til­mæli stórra hlut­hafa. Guð­mundur sagði ljóst að aðrir stórir hlut­hafar treysti honum ekki til að leiða stjórn félagsins. Aðal­fundur Reita hófst klukkan 15:00 í dag. Sjá einnig Davíð hættir við og til­nefna nú Pálmar

Share this article