Guðmundur Ingi Jónsson, stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi Reita, sagði á aðalfundi fasteignafélagsins í dag að hann hafi hugsað sér að minnka stöðu sína í félaginu frekar. Það væri þó háð því að markaðsgengi sé ásættanlegt. „Ég hef þegar selt 1% af mínum hlut og hef hugsað mér að selja meira, en það tók mig sex ár að safna þessum hlutum í Reitum. Ég er ekki að fara að selja þessi hluti á einhverri útsölu vegna þess að Reitir eru frábært félag. Ég tel að það sé stórlega vanmetið núna,“ sagði Guðmundur. Mat hans um að virði Reita sé vanmetið á markaði liggi að baki ákvörðun Kjalar fjárfestingarfélags að kaupa 750 þúsund hluti, eða um 0,1% eignarhlut, fyrir 87 milljónir króna á genginu 116 krónur í dag. Tilkynnt var um umrædd viðskipti á meðan aðalfundurinn stóð yfir í dag. Mikil lækkun eftir að Guðmundur dró framboðið til baka Guðmundur fer fyrir félögum sem áttu 5,25% hlut í Reitum í byrjun mars. Annars vegar er um að ræða 50% hlutur í Kili fjárfestingarfélagi og 100% hlutur í GJ Invest ehf. Kjölur átti 4,2% hlut í byrjun mánaðar og GJ Invest ríflega 1% hlut. Á þriðjudaginn í síðustu viku, 17. mars, seldi GJ Invest allan 1,02% eignarhlut sinn í Reitum fyrir 870 milljónir króna á genginu 122 krónur á hlut. Salan fylgdi í kjölfar þess að Guðmundur tilkynnti stærstu hluthöfum félagsins þann 5. mars um að hann hefði ákveðið að draga framboð sitt í stjórn fasteignafélagsins til baka vegna óánægju með hvernig staðið var að ákvörðun um hver skuli taka við stjórnarformennsku Reita. Gengi hlutabréfa Reita stóð í 130 krónum þegar hann sendi umrætt bréf. Sjá einnig Stærsti einkafjárfestirinn hættir í stjórn Reita Guðmundur sagði á fundinum í dag að ljóst sé að gengi Reita hafi lækkað mikið eftir að hann tók ákvörðun um að hætta í stjórn félagsins. „Það er nú bara þannig á markaði að um leið og markaðsaðilar fá smá blóð á tennurnar þá ætla allir að gera kjarakaup og vita að ég hafði hug á að selja hluta af mínum safni.“ Hann sagði ákvörðunina um að selja hlut GJ Invest í Reitum endurspegli ekki að hann hafi ekki trú á fasteignafélaginu, heldur hafi hún snúið að áhættustýringu í eignasafni hans. Útilokar ekki að stækka við sig á ný Sem fyrr segir sagði Guðmundur, sem tók sæti í stjórn Reita vorið 2025, að mögulega horfi hann til þess að minnka frekar við hlut sinn í fasteignafélaginu. Það væri þó háð þróun hlutabréfagengis Reita. „Það getur vel verið að ég þurfi að byggja upp hérna stöðu aftur. Ef ég þarf að gera það þá getur vel verið að ég komi aftur til baka á næsta ári.“