Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Guð­mundur selur í Reitum fyrir 870 milljónir

Read Full Article →

Guðmundur Ingi Jónsson, stjórnarmaður Reita, seldi hlutabréf í fasteignafélaginu fyrir 870 milljónir króna í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Salan fylgir í kjölfar þess að Guðmundur ákvað að draga framboð sitt í stjórn fasteignafélagsins til baka vegna óánægju með hvernig staðið var að ákvörðun um hver skuli taka við stjórnarformennsku. Sjá einnig Stærsti einka­fjár­festirinn hættir í stjórn Reita Guðmundur er stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi Reita en félög á hans vegum áttu fyrir viðskiptin í dag ‏samtals 5,25% hlut í Reitum. GJ Invest ehf., fjárfestingarfélag í 100% eigu Guðmundar, seldi allan 1,02% eignarhlut sinn í Reitum í dag. Félagið seldi rúmlega 7,1 milljón hluta í Reitum á genginu 122 krónur á hlut. Guðmundur á einnig helmingshlut í Kili fjárfestingarfélagi á móti Þorláki Traustasyni. Kjölur á 4,2% eignarhlut í Reitum, sem er tæplega 3,6 milljarðar króna að markaðsvirði. Viðskiptablaðið greindi frá því í síðustu viku að Guðmundur, sem tók sæti í stjórn Reita fyrir ári síðan, hefði ákveðið að hætta við að gefa kost á sér til endurkjörs í stjórn fasteignafélagsins. Guðmundur, sem sóttist eftir formennsku, sagði í bréfi til stærstu hluthafa að formaður tilnefningarnefndar hefði komið því á framfæri að Árni Sigurjónsson, sem lagt er til að komi nýr inn í stjórnina, skyldi kjörinn stjórnarformaður að tilmæli stórra hluthafa. Guðmundur sagði ljóst að aðrir stórir hluthafar treysti honum ekki til að leiða stjórn félagsins. Tilnefningarnefnd Reita birti í gær viðauka við skýrslu sína fyrir aðalfund Reita sem fer fram 25. mars næstkomandi. Þar lagt til að Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf., taki sæti í stjórn fasteignafélagsins í stað Guðmundar. Sjá einnig Leggja til að Davíð komi inn fyrir Guðmund

Share this article