Guðmundur Ingi Jónsson, stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi Reita, hefur ákveðið að hætta við að gefa kost á sér til endurkjörs í stjórn fasteignafélagsins vegna óánægju með hvernig staðið var að ákvörðun um hver skuli taka við stjórnarformennsku. Guðmundur, sem sóttist eftir formennsku, lýsir niðurstöðunni sem gríðarlegum vonbrigðum og segir að sér hafi ekki verið sýnt það traust sem hann vonaðist eftir. Á þriðjudaginn síðasta, 3. mars, voru birtar tillögur tilnefningarnefndar Reita fyrir aðalfund félagsins, sem fer fram 25. mars nk. Nefndin lagði til að Árni Sigurjónsson, forstöðumaður hjá JBT Marel og fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins, taki sæti í stjórn fasteignafélagsins í stað Þórarins Viðars Þórarinssonar sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Lagt var til að aðrir stjórnarmenn, þar á meðal Guðmundur, yrðu endurkjörnir. Sjá einnig Þórarinn að hætta sem stjórnarformaður Reita Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift