Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Líklegt að stýrivextir verði hækkaðir frekar í maí

Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.3.2026 | 6:00 Líklegt að stýrivextir verði hækkaðir frekar í maí Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur hjá Kontext og efnahagsráðgjafi Reitunar/IFS. Samsett mynd/mbl.is/María/Eggert Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Staðan erfið og aðgerða þörf Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“ „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út „Þetta er alvarlegt óveðursský“ » Fleiri tengdar fréttir „Þetta er akkúrat eftir því sem við hjá Reitun/IFS vorum búin að spá. Okkur fannst einnig líklegra að vextir myndu hækka um 0,5 prósentustig en að þeir yrðu óbreyttir.“ Þetta segir Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur hjá Kontext og efnahagsráðgjafi Reitunar/IFS, en peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í gær og Konráð telur líklegt að vextir verði hækkaðir aftur í maí þó hann telji aðeins of snemmt að fullyrða um að einhverjar miklar frekari vaxtahækkanir séu fram undan. Frétt af mbl.is Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Óvissa um frekari hækkanir Konráð segir athyglisvert að tveir nefndarmenn hafi viljað hækka vexti um 0,5 prósentustig og sýnist honum bankinn vera að senda mjög skýr skilaboð um að hann taki hlutverki sínu og stöðunni alvarlega enda sé staðan hvað verðbólguna varðar mjög alvarleg og hafi þróast mjög hratt til versnandi vegar. „Þetta verður vonandi til þess að enginn vafi sé á að bankinn sé tilbúinn að gera það sem þarf til að ná verðbólgu niður.“ Hvað tónn peningastefnunefndar breyttist lítið við síðustu vaxtaákvörðun í febrúar þótt verðbólguhorfur hefðu snarversnað síðan nefndin hittist þar áður kom Konráði svolítið á óvart. Þannig segir hann í sjálfu sér eðlilegt að einhverjir hafi búist við því að sú yrði áfram raunin og vísar til þess að þótt spár greiningardeilda hafi flestar verið í takt við ákvörðun nefndarinnar þá hafi einhverjar rekið varnagla um óbreytta stýrivexti. „Þegar hlutirnir fara sífellt versnandi verður yfirvegun einfaldlega tómlæti gagnvart því að þeir séu að þróast til verri vegar og það vill peningastefnunefndin náttúrulega ekki. Ég held að það hafi kannski ýtt henni yfir í það að bregðast við með bæði þessari ákvörðun og mun harðari tón.“ Konráð segist ekki nákvæmlega átta sig á hvað nefndin eigi við með að vera tilbúin að herða aðhaldið frekar því þótt vextir hafi verið hækkaðir þá hafi verðbólga og verðbólguvæntingaþróun verið þannig að aðhald hafi engu að síður minnkað frá því t.d. nefndin lækkaði vexti í nóvember. Frétt af mbl.is „Þetta er alvarlegt óveðursský“ Trúverðugleikinn lykilatriði Hann telur mikla hækkun olíuverðs og annarrar hrávöru í kjölfar stigmögnunar átaka við Persaflóa eitthvað hafa að segja í ákvörðun nefndarinnar en segist þó ekki viss um að það hefði breytt niðurstöðunni ef sú staða hefði ekki komið upp. Mögulega hafi sú þróun þó leitt til þess að allir nefndarmenn hafi viljað hækka vexti og sumir viljað hækka þá meira en niðurstaðan varð. „Ég held að niðurstaðan hefði verið sú sama vegna þess að þróunin í verðbólgunni og væntingarnar, jafnvel þær sem mældust áður en þau átök brutust út, voru líka að kalla nokkuð skýrt á að það ætti að hækka vexti.“ Að peningastefnunefndin segi í yfirlýsingu sinni að þar sem kjölfesta verðbólguvæntinga sé svo laus búi hún ekki við þann lúxus að geta horft í gegnum skellinn sem hækkun olíuverðs sé, segir Konráð hjálpa umræðunni mjög mikið. „Einhvern tímann hefði Seðlabankinn getað leyft sér það t.d. þegar verðbólguvæntingar voru betur festar við verðbólgumarkmið. Ég held að það sé algjört lykilatriði og ástæðan fyrir því að bankinn verði að bregðast við þessum átökum. Þau hafa meiri áhrif á verðbólgu og verðbólguvæntingar þegar trúverðugleikinn er svona laskaður eins og hann er í tilfelli Íslands. Þess vegna held ég að sú yfirlýsing ein og sér sé mjög mikilvæg til þess að styðja við markmið Seðlabankans.“ Frétt af mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Tempra þarf væntingar Hverju þarf að breyta í samfélaginu til að snúa við þróun efnahagsmála? „Almennt held ég að við þurfum að horfast betur í augu við það hvað þarf til þess að stuðla að verðstöðugleika, að við séum ekki að gera okkur væntingar um að fá meira út úr hagkerfinu heldur en það er að afla,“ segir Konráð. Í hans huga hefur augljósasti fíllinn í herberginu verið fyrirkomulag vinnumarkaðarins. Hann segir ekki við einhvern einn að sakast þar en bendir á hefðina sem hefur myndast, lagaumgjörðina og að einhverju leyti traustið á milli aðila vinnumarkaðarins. „Hvernig launasetningin hefur verið á Íslandi er ekki í takt við það sem þarf til að ná verðbólgumarkmiði og það skiptir mjög miklu máli þegar 60% af verðmætasköpuninni fer í laun.“ Frétt af mbl.is Frumvarpið hjálpar ekki til Aðspurður játar Konráð að hér þurfi að einhverju leyti að nást ný þjóðarsátt en hann segist þó ekki viss um að það verði nóg. Það muni vissulega hjálpa en breytingar á löggjöfinni í kringum vinnumarkaðinn séu aðkallandi. „Það hlýtur að vera búið að benda margoft á hvað þarf að gera og hvernig þetta er í löndum þar sem þetta er allt saman í lagi. Ég sé enga ástæðu til þess að við getum ekki haft það eins hjá okkur. Er það samtal farið af stað? „Ég hreinlega þekki það ekki og ég stórefa það.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Staðan erfið og aðgerða þörf Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“ „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út „Þetta er alvarlegt óveðursský“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Múrinn étur upp húðina“ Sunnan hvassviðri eða stormur víða um land Staðan erfið og aðgerða þörf Leyfi fyrir Hvammsvirkjun samþykkt Líklegt að stýrivextir verði hækkaðir frekar í maí Umræðan Tölum íslensku Forræði yfir auðlindum þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Mjög skrýtið ef við værum öll sammála“ Varað við snjóflóðum, krapaflóðum og grjóthruni Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Peningastefnunefnd skipt um gír Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Sigríður telur að sér vegið Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Umdeildum framkvæmdum lokið Hvað fór úrskeiðis á Stuðlum? Tólf ákærðir fyrir skjalafals Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“ Tónabíó opnað aftur á morgun: „Okkar krúnudjásn“ „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Nýjast á mbl.is » „Múrinn étur upp húðina“ Sunnan hvassviðri eða stormur víða um land Staðan erfið og aðgerða þörf Leyfi fyrir Hvammsvirkjun samþykkt Líklegt að stýrivextir verði hækkaðir frekar í maí Umræðan Tölum íslensku Forræði yfir auðlindum þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Líklegt að stýrivextir verði hækkaðir frekar í maí Tónabíó opnað aftur á morgun: „Okkar krúnudjásn“ Frumvarpið hjálpar ekki til Átti að vera búið að loka byggingunni Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Sigríður telur að sér vegið Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Umdeildum framkvæmdum lokið Hvað fór úrskeiðis á Stuðlum? Tólf ákærðir fyrir skjalafals Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“ Tónabíó opnað aftur á morgun: „Okkar krúnudjásn“ „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“

Share this article