Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gasverð rýkur upp eftir árásir Írana í morgun

Read Full Article →

Íranar gerðu í morgun árásir á gas- og olíuframleiðslustöðvar í Kúveit og Katar. Ráðamenn í Kúveit greindu frá því að Íranar hefðu ráðist á tvær olíuhreinsistöðvar í landinu með skömmum fyrirvara. Þeir sögðu að eldur hefði blossað upp í Mina Abdulla en að minniháttar eldsvoði hefði orðið í Mina Al-Ahmadi. Gasverð á evrópskum mörkuðum hækkaði um allt að 35 prósent í morgun þegar nýjar fréttir bárust af árásum á stærstu gasframleiðslustöð heims í Ras laffan í Katar. Tvennar árásir voru gerðar á stöðina og ollu þær miklum skemmdum. Olli það ótta um að enn erfiðara yrði að nálgast orku frá Persaflóa. Olíuverð hækkaði um fimm prósent á asískum mörkuðum og verðið á Brent-hráolíu fór í 113 dollara á tunnuna. Hlutabréfaverð lækkaði einnig. Írönsk stjórnvöld fordæmdu í morgun drápið á Ali Larijani, yfirmanni öryggisráðs Írans. Hann féll í loftárás Ísraela. Kínverjar gagnrýndu einnig árásir Írana á önnur ríki við Persaflóa.

Share this article