Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gas­verð upp um 25% og olían komin í 118 dali á tunnu

Read Full Article →

Heimsmarkaðsverð á Brent-hráolíu er komið yfir 118 dali á tunnu og verð á jarðgasi í Evrópu hefur hækkað um meira en 20% eftir að loftárásir Írana olli umfangsmiklu tjóni á stærstu gasvinnslustöð heims í Ras Laffan í Katar. Skemmdir á verksmiðjunni - sem framleiðir allt að fimmtung af heimsframleiðslu á fljótandi jarðgasi (LNG) – hafa víðtækar afleiðingar fyrir alþjóðlega orkumarkaði. Röskun á starfsemi stöðvarinnar fylgir í kjölfar þess að drónaárás frá Íran neyddi ríkisfyrirtækið QatarEnergy til að stöðva starfsemi sína í byrjun mánaðar. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að Ísraelar verði ekki með fleiri árásir á hið gríðarstóra gasvinnslusvæði South Pars í Íran. Trump hótaði því hins vegar að Bandaríkin muni „sprengja í loft upp allt“ svæðið ef Íranir ráðast aftur á gasvinnslustöðvar í Katar. Verð á framvirkum TTF-samningum, sem eru álitnir staðall fyrir gasverð í Evrópu, hefur hækkað um 25% í morgun og er komið upp í 68 evrur á megavattstund ár. Til samanburðar var verðið lægra en 27 evrur í desember síðastliðnum. Verð á Brent hráolíu hefur hækkað um liðlega 10% og stendur í 118 dölum á tunnu þegar fréttin er skrifuð.

Share this article