Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olíu­verð rýkur upp eftir átök helgarinnar

Read Full Article →

Heims­markaðsverð á olíu hækkaði skarpt í morgun, á fyrsta við­skipta­degi eftir loftárásir Bandaríkjanna og Ís­raels á Íran um helgina, en átökin hafa aukið ótta um truflanir á olíu­flutningum frá Persaflóa. Sam­hliða lækkuðu hluta­bréf á helstu mörkuðum í Asíu í nótt er fjár­festar leituðu í varfærnari eignir á borð við gull. Verð á Brent-hráolíu, sem er alþjóð­legt viðmiðunar­verð á olíu, hækkaði um 13% í fyrstu við­skiptum í morgun og fór hæst í 82,37 dali á tunnu í upp­hafi dags. Hluti hækkunarinnar gekk síðar til baka en verðið Brent er nú um 8% hærra en á föstu­daginn. Á sama tíma hækkaði verð á jarðgasi í Evrópu um 24%. Áhyggjurnar eru flestar tengdar Hor­mússundi, en um fimmtungur af olíu og gasi heimsins fer í gegnum þá þröngu siglinga­leið við Persaflóa. Sam­kvæmt Financial Times hefur hægst veru­lega á um­ferð um sundið eftir árásirnar, sem ýtir undir svo­kallaða stríðsálagningu á olíu og gasi. Að auki er bent á að gagnárásir Írans á ríki við Persaflóa geti ógnað inn­viðum sem skipta sköpum fyrir alþjóð­legan orku­markað. Þar vegur þungt að Katar og Sam­einuðu arabísku fursta­dæmin fram­leiða saman um fimmtung af heims­fram­leiðslu á fljótandi jarðgasi (LNG), sem er að jafnaði flutt út um Hor­mússund til Asíu og Evrópu. Hag­fræðingur hjá Julius Baer, Nor­bert Rücker, segir við blaðið að áhrifin á heims­bú­skapinn ráðist fyrst og fremst af því hvort flæði olíu og gass um Hor­mússund haldist. Versti óttinn sé ekki endi­lega form­leg lokun sundsins, heldur al­var­legt tjón á lykilinn­viðum olíu- og gas­geirans á svæðinu. Hluta­bréf lækka, gull hækkar Hreyfingar á hluta­bréfa­mörkuðum bera með sér áhættu­fælni fjár­festa. Stoxx Europe 600-vísi­talan lækkaði um 1,5% í fyrstu við­skiptum á meðan helstu markaðir í Asíu lækkuðu í nótt. Fram­virkir samningar benda til þess að S&P 500 muni opna lægra síðar í dag. Á sama tíma hækkaði gull um 1,6% og dalurinn styrktist gagn­vart helstu gjald­miðlum. Hröð hækkun á olíu­verði getur smitast fljótt út í verðlag, ekki síst í gegnum elds­neyti, flutnings­kostnað og verðbólgu­væntingar. Ef átökin draga úr fram­boði eða trufla flutninga til lengri tíma getur það aukið verðbólguþrýsting og gert seðla­bönkum erfiðara fyrir að slaka á peninga­stefnu — á sama tíma og hærra orku­verð dregur gjarnan úr kaup­mætti og vexti.

Share this article