Stríðsátökin í Íran hafa valdið mestu röskun á olíuflutningum í sögu heimsmarkaðarins, að mati Alþjóðaorkumálastofnunarinnar, IEA. Fram kemur í nýrri skýrslu stofnunarinnar að framleiðsla á hráolíu muni dragast saman niður í lægsta stig í fjögur ár. Samkvæmt IEA hafa olíuframleiðendur við Persaflóa dregið úr framleiðslu um að minnsta kosti 10 milljónir tunna á dag þar sem siglingar um Hormússund eru nær ófærar. Gert er ráð fyrir að heimsframleiðsla dragist saman um 8 milljónir tunna á dag í mars, sem jafngildir rúmlega 7 prósenta samdrætti frá því magni sem var framleitt í febrúar, um 107 milljónir tunna á dag. „Stríðið í Miðausturlöndum veldur mestu truflun á framboði í sögu alþjóðlegs olíumarkaðar,“ segir í skýrslu IEA en Financial Times greinir frá. Sjá einnig Icelandair og Eimskip finna fyrst fyrir högginu Tunnan af Brent-hráolíu hefur verið í kringum 100 dali á ný í dag eftir töluverðar hækkanir síðustu tvo daga. Mestur samdráttur hefur orðið í Írak, Katar, Kúveit, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Sádi-Arabíu. IEA bendir þó á að aukin framleiðsla í Kasakstan og Rússlandi, auk meiri framleiðslu utan OPEC+, geti að hluta vegið upp á móti samdrættinum við Persaflóa. Sádi-Arabía og Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa jafnframt reynt að bregðast við stöðunni með því að beina útflutningi í auknum mæli um hafnir utan Persaflóa. IEA segir að daglegur útflutningur Sáda um vesturhafnir landsins hafi náð meti 9. mars, eða 5,9 milljónum tunna á dag. Til samanburðar hafi flæðið um þá leið að meðaltali verið 1,7 milljónir tunna á dag á þessu ári. Þá hafi Adnoc, ríkisolíufélag Abu Dhabi, lestað að meðaltali 2,4 milljónir tunna á dag í Fujairah-höfn dagana 4. til 9. mars. Höfnin tengist leiðslu frá framleiðslusvæði félagsins í Habshan og stórri hráolíugeymslu í Al-Mandous. IEA segir að áhrifin á heimsmarkaðinn muni ráðast af því hversu lengi átökin dragast á langinn. Stofnunin spáir nú að olíuframboð í heiminum aukist að meðaltali um 1,1 milljón tunna á dag á árinu 2026. Það er mun lægri spá en stofnunin gaf út fyrir mánuði þegar hún taldi framleiðsluaukningu geta orðið 2,4 milljónir tunna á dag á þessu ári. Sjá einnig „Lokun sundsins ávallt verið þeirra helsta vopn“