Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News Viðskiptablaðið

Gas­verð rýkur upp eftir að Katar lokaði fram­leiðslu­stöð

  • What: Gas prices rise due to Qatar halting production amid Iranian attack.
  • Impact: Economic impact, not directly related to cybersecurity.
Read Full Article →

Gasverð á heildsölumarkaði á meginlandi Evrópu hefur hækkað um tæplega helming í dag í kjölfar þess að Katar stöðvaði framleiðslu á fljótandi jarðgasi vegna loftárása Írans. Gasverð hefur ekki hækkað meira frá því að Rússar réðust fyrst inn í Úkraínu. Verð á framvirkum TTF-samningum, sem eru álitnir staðall fyrir gasverð í Evrópu, er komið upp í 46,5 evrur á megavattstund og hefur ekki verið hærra í eitt ár. Til samanburðar var verðið lægra en 27 evrur í desember síðastliðnum. Katarska ríkisrekna orkufyrirtækið QatarEnergy upplýsti í dag um að það hefði stöðvað framleiðslu í kjölfar loftárása á framleiðslustöð félagsins. Varnarmálaráðuneyti Katar hafði áður greint frá því að einn íranskur dróni hefði miðað á orkumannvirki QatarEnergy í borginni Ras Laffan. Var þar vísað til gasvinnslustöðvar fyrirtækisins á landi, 80 kílómetrum norður af Doha. Gasverð hafði þegar hækkað um meira en 20% í ár vegna áhyggja um að stríð í Íran myndi stöðva flutninga um Hormúndssundið. Sádi-Arabía hefur einnig lokað stærstu olíuhreinsunarstöð sinni í Ras Tanura í kjölfar drónaárásar.

Share this article