Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dýralæknar vilja banna loðdýrahald

Read Full Article →

Dýralæknafélag Íslands vill að stjórnvöld taki skýra afstöðu gegn loðdýrahaldi við endurskoðun á regluverki um loðdýrarækt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu félagsins þar sem lýst er stuðningi við sjónarmið yfirdýralæknis í síðasta þætti Kveiks. Þar var fjallað um Í yfirlýsingu félagsins segir að Evrópuríki hafi í auknum mæli stigið skref í þá átt að banna loðdýrarækt. Nú þegar hafi sautján aðildarríki Evrópusambandsins gert það eða vinni að slíku banni. Í Kveik á þriðjudagskvöld var birt myndefni sem sýnir blóðug og sár dýr sem eru farin að naga sig inn að beini vegna streitu og kvíða. Myndirnar voru teknar í þremur minkabúum hér á landi. Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir Matvælastofnunar, hvatti í þættinum til endurskoðunar á lögum sem heimila loðdýrarækt. „Ég held að stjórnvöld þurfi að taka til skoðunar á hverju ákvörðun um svona starfsemi sé byggð, það hefur verið bylgja í allri Evrópu að taka það til skoðunar og ég held að íslensk stjórnvöld þurfi líka að gera það,“ sagði Þóra í þættinum.

Share this article