Mastur (MSTR ehf.) er nýtt fyrirtæki á sviði sjávarútvegstækni sem hefur hafið starfsemi í samstarfi við Micro. Félagið sérhæfir sig í þjónustu, varahlutum og þróun búnaðar fyrir fiskvinnslu. Mastur er stofnað af Silfá Huld Bjarmadóttur og Elvari Stefánssyni í samstarfi við Micro. Að baki félaginu standa aðilar með víðtæka reynslu úr íslenskum sjávarútvegi, þar á meðal í sölu, þróun og rekstri tæknilausna fyrir fiskvinnslu. Starfsemi Mastur felur meðal annars í sér þjónustu og viðhald á fiskvinnslubúnaði, sölu varahluta og áframhaldandi þróun lausna fyrir vinnslu, með áherslu á áreiðanleika, gæði og hraða þjónustu. Fyrirtækið hefur þegar hafið starfsemi og hefur þegar lokið afhendingu fyrstu pantana til viðskiptavina. Unnið er að frekari verkefnum og afhendingum á næstu misserum. Jafnframt er verið að byggja upp þjónustunet og styrkja tengsl við viðskiptavini og samstarfsaðila bæði innanlands og erlendis. Stjórn félagsins skipa Magnús Rúnar Guðmundsson, stjórnarformaður, ásamt Silfá Huld Bjarmadóttur og Gunnari Óla Sölvasyni. Elvar Stefánsson er framkvæmdastjóri félagsins.