Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Mastur sinnir þjónustu við vélar Vélfags

Read Full Article →

Mastur ehf. er nýstofnað hátæknifyrirtæki sem mun einbeita sér að þjónustu við fiskvinnsluvélar sem Vélfag ehf. hefur þróað og smíðað. Vélar frá Vélfagi í notkun eru um eitt hundrað talsins og þurfa eins og annar búnaður sérhæfða þjónustu. Vélfag er eina íslenska fyrirtækið sem sætt hefur aðgerðum af hálfu hins opinbera vegna meintra tengsla við Rússland og neyddist til að hætta starfsemi. Elvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Masturs. „Okkar verkefni verður meðal annars að útvega fyrirtækjum sem eiga Vélfagsvélar varahluti og þjónustu,“ segir Elvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Masturs, sem áður starfaði í um tíu ára skeið hjá Vélfagi. Hann þekkir því vel til mála og er í góðum tengslum við fyrrum viðskiptavini Vélfags. Um er að ræða línu flökunarvéla, hausara, roðflettivélar, UNO-fiskvinnsluvélina og fleiri véla. Skipin hætta ekki að sigla Silfá Huld Bjarmadóttir, fyrrum markaðsstjóri Vélfags, átti hugmyndina að nafni nýja fyrirtækisins. ,,Við vorum búin að vera með þessa flugu í maganum – að stofna fyrirtæki og stíga inn í þetta bil eftir að öllum í Vélfagi var sagt upp, því skipin hætta ekki að sigla og það var klár þörf á varahlutum og þjónustu. Silfá Huld Bjarmadóttir, fyrrum markaðsstjóri Vélfags, situr í stjórn Masturs. Ég hef unnið mikið með branding áður, meðal annars á vörulínum hjá Vélfagi eins og UNO. Orðið Mastur kom fljótlega upp í hugann og það small strax. Það er eitthvað við íslensk skip, þau standa af sér veður, storm og óvissu. Og mastrið er burðarásinn, það sem heldur öllu saman. Rétt eins og varahlutirnir í hjarta vinnslunnar. " Smíða varahluti sem vantar Mastur hefur ekki aðgang að lager varahluta en mun smíða þá varahluti sem vantar. Náið samstarf er með Mastri og hátæknifyrirtækinu Micro sem á helming í Mastri. Mastur hefur einnig aðstöðu til sinnar starfsemi í húsnæði Micro í Hafnarfirði þar sem stór hluti framleiðslunnar fer fram. Stjórnarformaður Masturs er Magnús Rúnar Guðmundsson, forstjóri Micro. Um leið og smíðað verður upp í pantanir verður byggður upp lager af varahlutum. Um er að ræða nokkrar gerðir af hausurum, flökunarvélum og roðflettivélum, 8 til 10 mismunandi vélar. Innanlandsmarkaðurinn er stærstur en einnig er að finna vélar í Þýskalandi, Frakklandi og Noregi sem dæmi. „Með tíð og tíma vonumst við til að smíða okkar eigin vélar og jafnvel fara á nýja markaði, en það gæti tekið tíma að komast á þann stað. Það yrði gert á grunni þeirrar reynslu sem flyst inn í Mastur frá Vélfagi,“ segir Elvar. Hann segir að það sé bjart framundan hvað varðar þau verkefni sem Mastur mun taka að sér sem er að halda við vélum frá Vélfagi gangandi. Verði tækifæri til að láta að sér kveða á fleiri sviðum verði það gert.

Share this article