Mastur er nýtt fyrirtæki á sviði sjávarútvegstækni sem hefur hafið starfsemi. Félagið sérhæfir sig í þjónustu, varahlutum og þróun búnaðar fyrir fiskvinnslu og var stofnað af Silfá Huld Bjarmadóttur og Elvari Stefánssyni í samstarfi við Micro. Að baki félaginu standa aðilar með víðtæka reynslu úr íslenskum sjávarútvegi, þar á meðal í sölu, þróun og rekstri tæknilausna fyrir fiskvinnslu. Starfsemi Mastur felur meðal annars í sér þjónustu og viðhald á fiskvinnslubúnaði, sölu varahluta og áframhaldandi þróun lausna fyrir vinnslu, með áherslu á áreiðanleika, gæði og hraða þjónustu. Sjá einnig Full mikil spenna sé á markaðnum vestan hafs Fyrirtækið hefur þegar lokið afhendingu fyrstu pantana til viðskiptavina og er unnið að frekari verkefnum og afhendingum á næstu misserum. Jafnframt er verið að byggja upp þjónustunet og styrkja tengsl við viðskiptavini og samstarfsaðila bæði innanlands og erlendis. Stjórn félagsins skipa Magnús Rúnar Guðmundsson, stjórnarformaður, ásamt Silfá Huld Bjarmadóttur og Gunnari Óla Sölvasyni. Elvar Stefánsson er framkvæmdastjóri félagsins.