Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður

  • What: Icelandic fisheries companies are experiencing financial difficulties and cutting back on operations.
  • Impact: The reduction in activity is affecting support industries and leading to job losses.
Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 17.2.2026 | 13:30 Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri, bendir á að lítið hafi farið fyrir umræðu um hve íþyngjandi kolefnisgjöld hafa verið fyrir sjávarútveginn. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Þegar stjórnvöld boðuðu hækkun veiðigjalda var því víða spáð að hækkunin myndi ekki síst bitna á stoðfyrirtækjum sjávarútvegsins. Nú virðist þessi spá vera að rætast. Páll Kristjánsson er framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri og segir hann samdráttarmerkin víða, og að mörg fyrirtæki í svipuðum rekstri séu að draga saman seglin. Verkefnastaða Slippsins er viðunandi til skemmri tíma litið en Páll segir þurfa að hafa mun meira fyrir verkefnaöflun en áður: „Allir sem ég hef heyrt í eru búnir að missa bæði formlega og óformlega samninga. Allt sem hét viljayfirlýsingar og hönnunarsamningar er fyrir bí,“ segir Páll. „Á haustmánuðum 2024 voru fyrirtæki að setja sig í stellingar því það stefndi í að nýsmíði nokkurra fiskiskipa fyrir íslenskar útgerðir væri á teikniborðinu en í dag hafa þau verkefni – öll sem við þekkjum til – verið blásin af og engin ný skip eru fyrirhuguð.“ Frétt af mbl.is Veiðigjöld á þorsk hækka um rúm 90% Ríkissjóður verður af tekjum og fyrirtækin missa gott fólk Páll nefnir dæmi um fyrirtæki sem þjónusta sjávarútveginn með alls kyns nýsmíði og þjónustu sem hafi fækkað starfsfólki umtalsvert, borið saman við byrjun árs 2025. „Við erum í góðum málum miðað við marga aðra og hefur tekist að forðast uppsagnir umfram það sem kalla má eðlilegt í rekstri. Okkur auðnaðist að sjá í hvað stefndi og jukum enn frekar áherslu á sölu- og markaðsmál til að halda verkefnunum og tekjunum gangandi. Munurinn er þó sá að í dag þurfum við að sinna allt að tíu smærri verkefnum til að vera á sama stað og eitt stærra verkefni gaf áður.“ Reikna má með neikvæðum áhrifum bæði til skemmri og lengri tíma, og nefnir Páll að ríkissjóður hljóti að verða af tekjum þegar stoðfyrirtækin eru í vanda og þurfa að fækka fólki, en fyrirtækin séu jafnframt að missa dýrmæta verkþekkingu út úr rekstrinum sem ekki verði auðvelt að endurheimta þegar og ef verkefnastaðan batnar á ný. Mynd úr safni af Blængi NK í flotkví Slippsins á Akureyri. Páll spáir samþjöppun. Morgunblaðið/Margrét Þóra Óvissa og flækjustig Páll tekur undir að ástandið í dag sé afleiðing þess útgjaldaauka sem hækkun veiðigjaldanna hefur valdið íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum, en einnig standi fyrirtækin mörg frammi fyrir óvissu um nákvæmlega hve mikil byrði gjöldin verði þegar upp er staðið. Útreikningur og innheimta gjaldanna er frekar flókin og ekki auðvelt fyrir útgerðir að sjá það nákvæmlega fyrir hvaða svigrúm er í rekstrinum fyrir nýsmíði og viðhald. „Svo fór fólk að tala um leiðréttingu og sanngjarnt afgjald, en það var ekki horft til þess að um áratugaskeið hefur kerfið verið byggt upp eins og það er: það er að segja að aflaheimildir hafa gengið kaupum og sölum og veðsetning aflaheimilda var leyfð, hvaða skoðun sem fólk hefur svo á því,“ segir hann. Frétt af mbl.is Tekjufall í sjávarútvegi „Það er grunnmunur á því kerfi sem byggt hefur verið upp á Íslandi og t.d. Evrópu, þar sem verulegir styrkir hafa verið veittir til fjárfestinga í vinnslum, sem dæmi. Þær vinnslur keppa svo við íslenskar vinnslur, fjárfestingarkostnaður þeirra er verulegum mun lægri en íslenskrar vinnslu, sem svo hugsanlega er í eigu útgerðar sem hefur einnig fjárfest í aflaheimildum og ber af þeirri fjárfestingu kostnað. Það mætti segja að inn í verð aflaheimilda – þegar þær skipta um hendur – hafi þegar verið reiknuð rentan sem nú er bætt við til ríkisins sem upphaflega setti leikreglurnar. Rentan var færð til þeirra sem seldu sig út úr kerfinu og því voru það kannski mistök ríkisins að skattleggja sölu aflaheimilda ekki hærra í upphafi.“ Einyrkjum muni fækka Fleira ber að skoða, eins og Páll bendir á: „Svo getum við nefnt kolefnisgjaldið sem lagt er á jarðefnaeldsneyti. Það hefur verið talsvert fjallað um álagningu kolefnisgjalds og áhrif þess á flug en minna hefur verið fjallað um áhrif þess á sjávarútveg og tengdar greinar. Í grunninn eru ekki til aðrir orkugjafar fyrir flugvélar og skip en jarðefnaeldsneyti, hvort sem um er að ræða fiski- eða flutningaskip. Til samanburðar er ekki innheimt kolefnisgjald í Færeyjum, sem t.d. styrkir samkeppnisstöðu þjónustuaðila í sjávarútvegi þar í samkeppni við íslenska.“ „Allir sem ég hef heyrt í eru búnir að missa bæði formlega og óformlega samninga. Allt sem hét viljayfirlýsingar og hönnunarsamningar er fyrir bí,“ segir Páll. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Páll minnist nýlegrar greinar eftir Lárus Bl. Sigurðsson stjórnmálafræðing sem birt var á Vísi. „Þar kom fram að Ísland hefur greitt 144 milljarða króna vegna loftslagsmála 2017-2024 og jafnframt kom fram að við sem þjóð myndum greiða aðra 113 milljarða 2025-2029. Hvert fara þessir peningar frá þjóð sem líklega er umhverfisvænasta þjóð í heimi, þegar allt er talið, með yfir 80% orkunotkunar frá endurnýjanlegum orkugjöfum?“ Einnig telur Páll að hækkun veiðigjaldanna muni geta breytt umhverfi útgerðar. „Á sínum tíma starfaði ég hjá meðalstóru sjávarútvegsfyrirtæki þar sem við áttum reglulega í viðskiptum við einyrkja sem áttu nokkur þorskígildi en vantaði stundum meira, og var þá gert samkomulag sem gagnaðist bæði þeim og okkur. Þessum einyrkjaútgerðum hefur fækkað síðan þá en eru samt nokkrar eftir. Ég er hræddur um að í þessu nýja gjaldaumhverfi muni einyrkjunum fækka enn frekar. Það ætti ekki að koma á óvart ef næstu ár einkennast af enn frekari samþjöppun útgerðar.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Óvíst að reglugerð taki á vandanum Fín ýsuveiði og loðna allt um kring „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Markaðssetning sjávarafurða oft skilað árangri Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Þröng á þingi á loðnumiðum Heildarafli dróst saman um 5% „Góða loðnuvertíðin“ Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Fín ýsuveiði og loðna allt um kring Markaðssetning sjávarafurða oft skilað árangri Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár „Góða loðnuvertíðin“ Heildarafli dróst saman um 5% Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Æfingar aukist með Öldu-appi Þröng á þingi á loðnumiðum Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Gámar af fiski strand í Evrópu Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Talsvert af loðnu á miðunum Fleira áhugavert Legurýmin gætu nýst von bráðar Lögreglan sökuð um misferli í morðmáli Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Hvetja íslensk stjórnvöld til dáða Fleiri tegundir » Skoða allar landanir » Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Óvíst að reglugerð taki á vandanum Fín ýsuveiði og loðna allt um kring „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Markaðssetning sjávarafurða oft skilað árangri Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Þröng á þingi á loðnumiðum Heildarafli dróst saman um 5% „Góða loðnuvertíðin“ Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Fín ýsuveiði og loðna allt um kring Markaðssetning sjávarafurða oft skilað árangri Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár „Góða loðnuvertíðin“ Heildarafli dróst saman um 5% Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Æfingar aukist með Öldu-appi Þröng á þingi á loðnumiðum Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Gámar af fiski strand í Evrópu Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Talsvert af loðnu á miðunum Fleira áhugavert „Það verður bara að koma í ljós“ Vonast til að geta fundið Lúðvík Eitur sem ekki hefur verið notað áður Besti árangur Íslendings í 20 ár Fleiri tegundir » Skoða allar landanir »

Share this article