Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bláa lónið hagnast um tæpan milljarð

Read Full Article →

Bláa lónið hagnaðist um 6,6 milljónir evra, eða sem nemur rúmlega 960 milljónum króna á árinu 2025, samanborið við 7,6 milljóna evra tap árið áður. Stjórn félagsins mun ekki leggja til arðgreiðslu vegna ársins 2025, að því er kemur fram í nýjum ársreikningi . Tekjur samstæðu Bláa lónsins jukust um 35,6% milli ára og námu 156 milljónum evra eða um 22,6 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) þrefaldaðist milli ára og nam 29,4 milljónum evra, eða um 4,25 milljörðum króna. Eignir samstæðunnar í árslok 2025 námu 423,5 milljónum evra eða um 62,3 milljörðum króna. Eigið fé var um 220,8 milljónir evra eða um 32,5 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall var 52%. Stöðugildi í árslok 2025 voru 806, en voru 727 í lok ársins á undan. Sigríður Margrét formlega tekin við af Grími Aðalfundur Bláa Lónsins hf. var haldinn fyrr í dag. Á fundinum urðu þau tímamót að Grímur Sæmundsen tók sæti í stjórn félagsins og var kjörinn stjórnarformaður en auk hans skipa stjórnina næsta starfsárið þau Ágústa Johnson, Erla Ósk Ásgeirsdóttir, Jón Sigurðsson og Ragnar Guðmundsson. Grímur er stofnandi Bláa Lónsins hf. og gegndi störfum sem forstjóri félagsins frá stofnun þess, árið 1992 fram til aðalfundarins í dag, en Sigríður Margrét Oddsdóttir hefur nú tekið við af honum sem forstjóri. Sjá einnig „Okkar sýn er að ráðningin styrki félagið" „Ég er virkilega stoltur af því sem við höfum byggt upp og með sama hugarfari munum við halda áfram að byggja upp nýja áfangastaði víða um land og sækja fram á þeim mörkuðum sem við störfum. Með því að horfa til langs tíma, byggja á gæðum, hönnun og þeim einstöku eiginleikum sem Ísland hefur að bjóða er framtíð félagsins björt, tækifærin eru vissulega til staðar.“ segir Grímur Sæmundsen , í tilkynningu. „Bláa Lónið er einstakt fyrirtæki og nátengt orðspori Íslands á heimsvísu, það er heiður að leiða félagið inn í næsta kafla sögu þess.“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir. Bláa lónið hefur upp á síðkastið unnið að undirbúningi skráningar félagsins í Kauphöllina. Endanleg tímasetning liggur ekki fyrir en hún mun eðlilega ráðast af markaðsaðstæðum og þróun rekstrar­umhverfis félagsins, að því er segir í skýrslu stjórnar.

Share this article