Tekjur Bláa Lónsins fóru úr 115 í 156 milljónir evra milli ára og EBITDA þrefaldaðist. Skráning á markað hefur verið boðuð á þessu ári. Spurð hver staðan sé í þeim málum svarar Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins: „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um annað en það sem áður hefur komið fram í fjölmiðlum, en það er að sjálfsögðu hluthafanna að ákveða endanlega hvenær skráning fer fram. Bláa Lóninu hefur farnast vel sem óskráð félag en ég held að það færi mjög vel á því að félag eins og Bláa lónið væri skráð á íslenskan hlutabréfamarkað. Uppbyggingarverkefnið í Þjórsárdal er gott merki um þá langtímahugsun og þann metnað sem er innan félagsins, eru það ekki kostir fyrir skráð félög?“ Staðan í ferðaþjónustunni Blikur er á lofti í ferðaþjónustu sem dæmi tilkynnti Icelandair fyrir skömmu að félagið ætlaði að draga flugframboð saman um 5% í haust vegna hækkandi eldsneytisverðs og átakanna í Mið-Austurlöndum, og hækka fargjöld á sama tíma. Spurð hvort hún hafi áhyggjur af því að vera í miklum fjárfestinum á þessum tímapunkti svarar Sigríður Margrét: „Bláa Lónið hefur verið byggt upp með langtímasýn að leiðarljósi, það breytist ekki með minni innkomu, enda er stofnandinn stjórnarformaður.“ „Líkt og alltaf þá gengur rekstur út á tvennt, aðlagast aðstæðum til skemmri tíma og á sama tíma leggja grunninn að verðmætasköpun framtíðarinnar. Við erum að horfa áratugi fram í tímann í þeim áætlunum sem við erum að vinna eftir, það var til dæmis byrjað að huga að uppbyggingu í Þjórsárdal fyrir um það bil áratug síðan. Við viljum skilja eftir okkur fjársjóði fyrir kynslóðir framtíðarinnar og það krefst langtímahugsunar.“ Sjá einnig Milljarða fjárfestingar Bláa Lónsins Sjá einnig Gjörbreyting á Fontana við Laugarvatn Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .