Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Yfir 40 þjóðerni sem starfa hjá Bláa lóninu

Read Full Article →

Ríflega 7.500 starfsumsóknir hafa borist Bláa lóninu fyrir um 200 störf sem ráðið verður í fyrir komandi sumar hjá félaginu. Um er að ræða mesta fjölda umsókna sem fyrirtækið hefur fengið til þessa, eða um þrefalt fleiri frá því sem áður hefur verið. Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, menningar og vellíðanar hjá Bláa lóninu, segir í samtali við Viðskiptablaðið að fjöldinn endurspegli sterka stöðu fyrirtækisins. „Við erum rosalega ánægð að sjá þessa miklu aðsókn. Við vitum að atvinnuleysi hefur aukist en það skýrir þó ekki þennan mikla fjölda. Ég held að við höfum bara náð að skapa sterka ímynd sem vinnustaður sem hugsar vel um sitt fólk.“ Hún segir að Bláa lónið sé mjög fjölþjóðlegur vinnustaður og að yfir 40 þjóðerni starfi hjá fyrirtækinu. Um 850 starfsmenn vinna hjá Bláa lóninu og dótturfélögum þess. Sjá einnig Bláa lónið eignast meirihluta í Fontana „Það er mjög gaman að sjá ungt fólk taka sín fyrstu skref á vinnumarkaðnum hjá okkur þar sem það fær tækifæri til að vaxa og þróast. Við erum með svo mörg dæmi um ungt fólk sem byrjar að vinna hjá okkur yfir sumarið eða í gegnum námið og fer síðan yfir í aðrar deildir, verður sérfræðingar eða jafnvel stjórnendur.“ Sigrún telur að vinnuumhverfi Bláa lónsins bjóði einnig upp á góða þjálfun þar sem starfsmenn læri bæði þjónustulund og teymisvinnu. Ferðaþjónustan sé þá einnig hröð og síbreytileg atvinnugrein sem hjálpi ungu fólki að læra aðlögunarhæfni og viðnámsþrótt. „Áhugi á sumarstörfum endurspeglar ekki aðeins sterka stöðu Bláa lónsins sem vinnustaðar heldur einnig mikilvægi upplifunar- og vellíðanarferðaþjónustu sem atvinnugrein. Hún býður einnig upp á fjölbreytt og spennandi tækifæri fyrir ungt fólk.“

Share this article