Leiðtogum vel flestra aðildarríkja Evrópusambandsins hefur ekki tekist að fá Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands til að láta af andstöðu sinni gegn því að afgreiða níutíu milljarða lán ESB til Úkraínu. Harðar umræður voru um málefnið á fundi leiðtoganna sem hófst í Brussel í morgun; embættismaður hjá Evrópusambandinu sagði fréttamönnum hér að Antonio Costa, forseti leiðtogaráðsins og aðrir leiðtogar hefðu látið óánægju sína skýrt í ljósi um að afstaða Orbans væri óásættanleg; Costa sagði meðal annars að enginn leiðtogi hefði áður farið svona yfir strikið hvað samvinnu varðar innan Evrópusambandsins. Vefmiðilinn Politico hefur eftir embættismönnum að í umræðum inni á fundinum hafi Orban hafnað því að afstaða hans tengdist baráttunni fyrir þingkosningarnar í Ungverjalandi í næsta mánuði. Yfirlýsing leiðtogaráðsins um Úkraínu var gerð opinber fyrr í dag, þar sem segir meðal annars að leiðtogaráðið fagni afgreiðslu Evrópuþingsins á láninu til Úkraínu. Tuttugu og fimm af tuttugu og sjö aðildarríkjum Evrópusambandsríkjanna standa að þessari yfirlýsingu; Ungverjaland og Slóvakía eru ekki með, en bæði þessi ríki hafa reitt sig á olíu sem flutt hefur verið um leiðsluna frá Rússlandi um Úkraínu og áfram vestur á bóginn.