Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ungverjar bæta í hótanir gegn Úkraínu

  • What: Hungary is threatening to block EU aid to Ukraine and the EU's 20th sanctions package against Russia.
  • Impact: This is due to the disruption of an oil pipeline that supplies Hungary and Slovakia with Russian oil.
Read Full Article →

Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur bætt enn í hótanir gegn Úkraínu vegna olíuleiðslu sem liggur gegnum landið og færir Ungverjum og Slóvökum rússneska olíu. Engin olía hefur flætt þá leið í tæpan mánuð. Stjórnvöld í Kænugarði segja það vegna þess að leiðslan hafi skemmst mikið í loftárás Rússa. Ungverjar hótuðu fyrir helgi að stöðva lán ESB til Úkraínu nema opnað verði fyrir leiðsluna á ný, og Slóvakar segjast munu loka á neyðarraforku til Úkraínu. Í dag sagði Orban svo að Ungverjar myndu stöðva tuttugasta þvingunaraðgerðapakka ESB gegn Rússum nema olía flæði á ný. Aðgerðir ESB þurfa að vera samþykktar af öllum aðildarríkjum. AP/Pool AP / Alex Brandon

Share this article