- What: Peace talks between Ukraine and Russia are scheduled to take place in Geneva with low expectations for progress.
- Impact: The talks aim to address the ongoing conflict, but significant disagreements remain.
Litlar væntingar eru fyrir friðarviðræðum Úkraínumanna og Rússa í Sviss í dag. Að minnsta kosti þrír létust í loftárásum Rússa á 12 héruð í Úkraínu í morgun. Eftir nákvæmlega viku eru fjögur ár síðan Rússar hófu allsherjarinnrás inn í Úkraínu. Bandaríkjamenn fara fyrir friðarviðræðunum sem eru í Genf. Steve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar, og Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, stýra fundinum. Fyrir hönd Úkraínu verða Rustem Umerov, þjóðaröryggisráðherra Úkraínu, og Kyrylo Budanov, skrifstofustjóri forsetaembættis Úkraínu, á fundinum. Í rússnesku sendinefndinni eru meðal annars Valdimir Medinsky, aðstoðarmaður Rússlandsforseta, og starfsmenn leyniþjónustu hersins. Litlar væntingar eru til fundarins. Dmytri Peskov, talsmaður Rússlandsforseta, sagði að fólk ætti ekki að búast við fréttum af fundinum í dag. Rússnesk stjórnvöld halda enn til streitu kröfum sínum um landsvæði í Úkraínu og stjórnvöld þar hafa alltaf þvertekið fyrir að láta landsvæði af hendi. Rússar hafa innlimað um 20 prósent landsins, þar á meðal stóran hluta Dobas-héraðs í austurhluta Úkraínu. Rússar halda áfram loftárásum á Úkraínu og valda frekari skaða á þegar illa förnu orkukerfi landsins. Miklar vetrarhörkur hafa verið í Úkraínu síðustu vikur og margir íbúar landsins verið án hita og rafmagns svo dögum skiptir. Nokkrum klukkutímum áður en fundurinn hófst í Sviss gerðu Rússar enn eina loftárásina. Hún var umfangsmikil og á tólf héruð. 400 drónum og tæplega 30 flugskeytum var beitt í árásinni. Þrír hið minnsta létu lífið.