Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Átakafundur leiðtoga Evrópusambandsins í Brussel

Read Full Article →

Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands sló tóninn þegar hann kom á leiðtogafundinn hér í Brussel í morgun. „Við samþykkjum enga ákvörðun sem hjálpar Úkraínu, á meðan ekki er búið að leysa þetta með olíuna,“ sagði Orban við fjölmiðla í morgun. „Við erum ekki að tala um pólitík, heldur grundvallaratriði fyrir Ungverjaland: án olíunnar verða heimili og fyrirtæki þar gjaldþrota.“ Þessi deila hefur staðið undanfarnar vikur í kjölfar þess að Druzhba olíuleiðslan, sem liggur um Úkraínu skemmdist - í árás Rússa segja stjórnvöld í Kyiv. Ungverjar saka Úkraínumenn hins vegar um að hafa skemmt þessa leiðslu viljandi. Ungverjar fá stóran hluta af sinni olíu í gegnum þessa leiðslu frá Rússlandi - á undanþágu frá banni sem Evrópusambandið hefur sett á innflutning á rússneskri olíu. Orban samþykkti reyndar þetta níutíu milljarða evra lán til Úkraínu á leiðtogafundi hér í Brussel í desember - en hefur síðan skipt um skoðun. Ekki bætir úr skák að baráttan fyrir þingkosningar í Ungverjalandi er komin í fullan gang, og Orban og Fidez flokkur hans hafa málað Úkraínu upp sem helstu ógnina við almenning í Ungverjalandi. Í drögum að ályktun leiðtogafundarins sem fréttastofa hefur séð, eru einungis almenn orð um þetta lán. Búast má við hörðum orðaskiptum inni á fundinum í dag, og reyndar eru fordæmi fyrir því að Orban hafi gefið eftir í mikilvægum málum. Staðan í Mið Austurlöndum verður einnig rædd, sem og áhrifin sem þau átök hafa á orkuverð í Evrópu. Allt þetta virðist ætla að yfirgnæfa málefnið sem upphaflega stóð til að ræða í þaula: leiðir til að bæta samkeppnishæfni innan Evrópusambandsins og skilvirkni á innri markaðnum.

Share this article