Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bauðst til að vera mús að hjálpa rúss­nesku ljóni

Read Full Article →

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, sagði við Vladímír Pútín Rússlandsforseta í október síðastliðnum að hann væri tilbúinn að aðstoða hann „á hvaða hátt sem er“ og bauðst jafnvel til að hjálpa til við að skipuleggja viðræður vegna stríðsins í Úkraínu, samkvæmt umritun ungverskra stjórnvalda á símtali sem Bloomberg hefur undir höndum. „Í gær náði vinátta okkar slíkum hæðum að ég er tilbúinn að hjálpa til á hvaða hátt sem er,“ sagði Orbán í símtali þann 17. október 2025. „Í hvaða mála sem ég get aðstoðað við, þá er ég til þjónustu reiðubúinn.“ Orbán vísaði í vel þekkta þjóðsögu og líkti sjálfum sér við mús sem aðstoðar ljón. Sagan segir frá litlu dýri sem losar öflugt rándýr úr gildru í kjölfar þess að hafa áður verið þyrmt. Samkvæmt umrituninni vöktu ummælin hlátur hjá Pútín. Orbán sagði samband sitt við Pútín hafa dýpkað með tímanum, á meðan rússneski leiðtoginn hrósaði „sjálfstæðri og sveigjanlegri“ afstöðu Ungverjalands til stríðsins í Úkraínu. Meginviðfangsefni símtalsins var möguleikinn á að Ungverjaland myndi hýsa fund með Rússlandi og Bandaríkjanna. Orbán lýsti áhuga á að koma að undirbúningi að leiðtogafundi í Búdapest, sem var til skoðunar á þeim tíma. Í símtalinu var Ungverjalandi lýst sem einu af fáum Evrópulöndum sem kæmu til greina fyrir slíkar viðræður, og Pútín sagði að það væri „ef til vill eini“ raunhæfi kosturinn við þær aðstæður sem uppi voru. Þrátt fyrir að fyrirhugaður leiðtogafundur í Búdapest hafi að lokum ekki farið fram, eru þessi orðaskipti sögð endurspegla áhuga ungverskra stjórnvalda til að vera milliliður í viðræðum sem tengjast Rússlandi.

Share this article