Ungverski utanríkisráðherrann Péter Szijjártó er sagður hafa lekið upplýsingum til Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands. Þetta kemur fram í umfjöllun The Washington Post Szijjártó er lykilmaður í ríkisstjórn Viktors Orbáns, sem er talin höll undir Rússa. Alls hefur hann hefur farið í 16 opinberar heimsóknir til Rússlands síðan innrásin í Úkraínu hófst árið 2022. Szijjártó brást ókvæða við umfjöllun Washington Post eftir að Radosław Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, vakti athygli á málinu á samfélagsmiðlinum X. Hann sagði umfjöllunina falsfréttir og tilraun til að hafa áhrif á komandi þingkosningar í Ungverjalandi sem fram fara þann 12. apríl. Donald Tusk forsætisráðherra Póllands sagði að það kæmi sér ekki á óvart að Szijjártó eða aðrir innan ríkisstjórnar Orbán hefðu veitt upplýsingar til Rússlands. Ríkisstjórn Ungverjalands undir stjórn Viktors Orbán hefur löngum verið sökuð um að ganga erinda Rússlands innan Evrópusambandsins og í NATO. Sem stendur er Ungverjaland að beita neitunarvaldi sínu innan ESB til að koma í veg fyrir 90 milljóna evra lán til Úkraínu. Þá hefur Orbán áður sagt að hann muni aldrei leyfa Úkraínu að ganga í sambandið. Vildu setja launmorð Orbáns á svið Péter Magyar, keppinautur Orbán og formaður Tisza-flokksins, hefur heitið því að snúa Ungverjalandi frá Rússlandi komist hann til valda. Nýjustu skoðanakannanir sýna að Tisza hafi naumt forskot á Fidesz-flokk Orbáns í komandi kosningum. Í umfjöllun Washington Post er því einnig haldið fram að SVR, leyniþjónusta Rússlands, hafi stungið upp á því að hægt væri að bregðast við slæmu gengi Orbán í kosningabaráttunni með því að setja á svið launmorð á Orbán. Þannig mætti aðstoða hann í kosningabaráttu sem virðist ætla að verða sú erfiðasta á hans ferli.