Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Úkraína orðin helsta bitbeinið í kosningabaráttunni í Ungverjalandi

Read Full Article →

„Úkraína er að makka með Brussel um að skrúfa fyrir ódýra olíu og gas til Ungverjalands, svo verð á eldsneyti hækki. Þau vilja veikja Ungverjaland, en það tekst þeim ekki,“ skrifaði Viktor Orban í færslu sem birtist í lok síðasta mánaðar á X. Á þeim tíma var Úkraína þegar orðin helsta bitbeinið í baráttunni fyrir þingkosningarnar sem verða í Ungverjalandi 12. apríl; síðan þá hefur heldur betur hitnað í kolunum; deilan um olíuleiðsluna sem liggur í gegnum Úkraínu til Ungverjalands hefur harðnað til muna, forseti Úkraínu hefur verið með óbeinar hótanir í garð Orbans, sem hefur - eins og við mátti búast - nýtt sér þær í kosningabaráttunni. „Þú mun líklega sjá það í fréttum að Úkraínumenn hafa hótað okkur. Ekki bara mér, heldur líka þér, börnunum og barnabörnunum,“ segir Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands í myndbandi sem hann setti á Facebook á miðvikudaginn. Þetta er vissulega rétt hjá Orban; Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti sagði í síðustu viku að réttast væri að láta úkraínska hermenn fá númerið hjá þeim einstaklingi í Evrópu sem stæði í vegi fyrir afgreiðslu láns Evrópusambandsins til Úkraínu - það er auðvitað Orban sem hefur blokkerað þær fyrirætlanir, þrátt fyrir að hafa samþykkt lánið á leiðtogafundi í desember. Annað tilefni Orbans kom svo til sögunnar fyrr í þessari viku, þegar myndband birtist á Youtube með viðtali við úkraínskan mann sem sagði meðal annars að Orban ætti að huga að börnum sínum og barnabörnum. Uppruni þessa myndbands er reyndar ekki á hreinu og sumir hafa haldið því fram að viðtalið sé uppspuni, gerður með aðstoð gervigreindar. Umræða sem hentar Orban og Fidez Öll þessi umræða um Úkraínu hentar auðvitað Orban og Fidez-flokki hans afar vel fyrir kosningarnar. Orban hefur í langan tíma verið merkisberi andstöðunnar við aðstoð Evrópusambandsins við Úkraínu og málflutningur hans passar auk þess vel inn í þann söguþráð sem stjórnvöld í Búdapest hafa haldið á lofti um þær langvarandi deilur sem þau hafa staðið í gagnvart framkvæmdastjórn ESB, meðal annars vegna gagnrýni á réttarfar og stöðu fjölmiðla í Ungverjalandi. „Stjórnarflokkurinn er að reyna að höfða til ótta kjósenda og teikna núverandi stjórnvöld upp sem þau einu sem geti verndað Ungverja gegn stríði - og nú einnig gegn Úkraínumönnum sem nýjum óvini,“ skrifar Veronika Munk, ungversk blaðakona og greinandi í vikulegum pistli sem hún heldur úti um þingkosningarnar. Fidez fer halloka samkvæmt könnunum Fidez flokkurinn, með Viktor Orban í fararbroddi, hefur sigrað í öllum kosningum síðan 2010 - þegar Orban tók við embætti forsætisráðherra - og hefur þar að auki verið með aukinn meirihluta (super majority) á þinginu í Búdapest; nokkuð sem gert hefur flokknum kleift að setja lög að vild og breyta stjórnarskránni, meðal annars til þess að gera öðrum stjórnmálaflokkum erfiðara fyrir að ná þingsætum í kosningum. En nú virðast vera blikur á lofti fyrir stjórnarflokkinn, því samkvæmt flestum skoðanakönnunum sem mark er tekið á í Ungverjalandi er Fidez nú með nokkuð minna fylgi en helsti keppinauturinn: Tisza flokkur Peters Magyars, sem reyndar er fyrrum samstarfsmaður Orbans. Flestar kannanir sem gerðar eru af óháðum aðilum eða fyrirtækjum sem tengjast stjórnarandstöðunni sýna um það bil tíu til fimmtán prósentustiga forskot Tisza, á meðan Fidez hefur forskot upp á fimm til tíu prósentustig samkvæmt könnunum fyrirtækja sem tengjast stjórnvöldum. Hvenær birtist kynlífsmyndbandið? Kosningabaráttan hófst formlega um miðjan febrúar, en hefur auðvitað staðið mun lengur; Magyar hefur til að mynda verið á nær stanslausu ferðalagi um Ungverjaland undanfarin tvö ár. Baráttan er hörð og orðin talsvert óvægin: um miðjan febrúar tilkynnti Magyar opinberlega að andstæðingar hans ætluðu að birta myndband sem hann sagði vera „tekið upp með leynilegum hætti, mögulega falsað, af fyrrum kærustu minni og mér að stunda kynlíf.“ Tilkynning Magyars vakti athygli og var mögulega ástæðan fyrir því að myndbandið hefur (ennþá allavega) ekki verið birt. „Baráttumaður og SIGURVEGARI“ Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa opinskátt lýst yfir stuðningi við Orban í aðdraganda kosninganna. Marco Rubio, utanríkisráðherra kom til Búdapest um miðjan síðasta mánuð, nokkrum dögum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði lofgjörð til Orbans á Truth Social samfélagsmiðlinum. „Viktor Orban er sannur vinur, baráttumaður og SIGURVEGARI, og hefur fullan stuðning minn fyrir endurkjöri sem forsætisráðherra Ungverjalands,“ sagði Trump í færslu sinni. Stuðningur erlendis frá við Viktor Orban kemur einnig frá Rússlandi, ef marka má frétt sem Financial Times birti á miðvikudaginn. Þar er fullyrt að stjórnvöld í Kreml hafi samþykkt áætlun rússnesks ráðgjafafyrirtækis um herferð á samfélagsmiðlum til að styðja við kosningabaráttu Fidez flokksins og Orbans. Í tillögu fyrirtækisins sem Financial Times vitnar í, og skrifuð var í fyrra, kemur fram að tilgangurinn með þessari herferð sé að kynna Orban sem sterkan leiðtoga með vini á alþjóðasviðinu; mann sem geti tryggt fullveldi Ungverjalands, á meðan Peter Magyar er málaður upp sem leiksoppur Brussel. Rannsóknarfjölmiðillinn VSquare greindi frá því í síðustu viku að stjórnvöld í Kreml hefðu sent hóp manna, þar á meðal náinn samstarfsmann Vladimir Pútins Rússlandsforseta, til Búdapest til að hafa áhrif á niðurstöðu kosninganna og sjá til þess að Orban myndi sigra. Talsmaður ungversku ríkisstjórnarinnar segir ekkert hæft í þessum fréttum og sendiráð Rússlands í Búdapest hefur sömuleiðis hafnað þeim.

Share this article