Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Staðfesti dóm fyrir stórfellda líkamsárás gegn starfskonu Vinakots

Read Full Article →

Landsréttur hefur staðfest átján mánaða fangelsisdóm yfir konu sem var sakfelld fyrir stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu gegn starfskonu á vistheimilinu Vinakoti árið 2022. Henni er einnig gert að greiða konunni fjórar milljónir króna í miskabætur. Sú sem varð fyrir árásinni, Tinna Guðrún Barkardóttir, ræddi málið í Kveik árið 2023. Vinakot er úrræði fyrir börn og ungmenni með fjölþættan vanda, en ítarlega var fjallað um mál starfskonunnar Tinnu Guðrúnar Barkardóttur í Kveik árið 2023 sem hlaut alvarlega líkamlega áverka af árásinni. Konan, sem var þá 19 ára, var skjólstæðingur Vinakots og var Tinna Guðrún ein með henni þegar árásin átti sér stað vegna manneklu. Reglum samkvæmt áttu tveir starfsmenn að vera með henni öllum stundum sökum sögu hennar um ofbeldishegðun. Tinna glímdi þegar við heilsufarsvanda eftir að hafa fengið heilablóðfall árið 2015 og var konunni kunnugt um það. Í niðurstöðu Landsréttar segir að árásin hafi verið vísvitandi, langvarandi og harkaleg. Tinna hafi hlotið stórfellt líkams- og heilsutjón. Ákærðu hafi verið kunnugt um að Tinna væri lömuð á vinstri hendi og gæti ekki dulist að hún ætti erfitt með að verja sig. Í niðurstöðu Landsréttar segir að telja verði að ákærða hafi í það minnsta látið sér afleiðingar árásarinnar í léttu rúmi liggja.

Share this article