Dósent við viðskipta og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík segir að það verði snúið að semja ef forsendur kjarasamninga bresta. Ekki sé víst að best sé að semja um launahækkanir heldur frekar aðra þætti. Traust á vinnumarkaði hafi lengi verið lítið og það standi okkur fyrir þrifum. Verðbólga og verðbólguvæntingar eru á uppleið og Seðlabankinn hefur hækkað vexti í fyrsta sinn síðan árið 2023. Flestir eru á því að forsendur langtímakjarasamninga séu að bresta og að aðilar vinnumarkaðarins þurfi að setjast niður saman annaðhvort til að semja um framhaldið eða hreinlega að gera nýja samninga. „Það verður vægast sagt snúið vegna þess að þetta ákvæði miðast við verðbólgu,“ segir Katrín Ólafsdóttir, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík. Frekari launahækkanir bæti á verðbólgubálið „Það er alveg ljóst að það er undirliggjandi þrýstingur á verðbólgu. Stór hluti af verðbólgunni er innlendur og nú er að bætast við erlend verðbólga, þannig að það liggur ekki ljóst fyrir að það sé besta lausnin að semja um frekari launahækkanir vegna þess að það myndi þá bara bæta enn á verðbólgubálið.“ Þannig að það væri þá frekar samið um skatta, félagslegar umbætur eða eitthvað á þeim nótum? „Það væri líklegra, já, og einhvers konar – hvort það verði breytingar með styttingu vinnutíma eða eitthvað slíkt, það væri möguleiki í stöðunni.“ Samningar um frekari launahækkanir myndu bæta enn á verðbólgubálið, segir dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, og því gæti verið betra að semja um aðra þætti. Traust vanti milli samningsaðila. Núverandi samningar eru langtímasamningar með hóflegum kauphækkunum. Aðspurð hvort ef samið verði upp á nýtt að það verði skammtímasamningar, segir Katrín erfitt að segja á þessari stundu, kostir og gallar fylgi bæði stuttum og lengri samningum og hvaða traust sé borið til framtíðarinnar. Nú sé mikil óvissa vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum og hversu lengi það dragist á langinn. Þá hafi traust á vinnumarkaði beðið hnekki. „Traust á vinnumarkaði hefur því miður verið ótrúlega lítið síðustu árin, það hefur staðið okkur fyrir þrifum. Það er alveg sameiginleg mynd á því hvað vinnumarkaðurinn þolir, það hversu miklar launahækkanir hann þolir, en yfirleitt í kjarasamningum hefur verið farið yfir þau mörk bara núna í mörg, mörg ár,“ segir Katrín. Hún minnir á að tveir eða jafnvel þrír séu að semja og því engum einum um að kenna þegar farið er yfir mörk þess sem hagkerfið þolir, eins og gerist oft. „Þetta held ég að sé töluvert um að kenna að það vantar traust á milli samningsaðila.“