Innlent | mbl | 17.4.2026 | 21:30 Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Allt þetta tal um að launahækkanir séu að valda öllum þessum vandræðum á sér enga stoð í raunveruleikanum, segir Vilhjálmur Birgisson í samtali við mbl.is. Samsett mynd mbl.is/Kristinn Magnússon/Golli Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Laun hækkað langt umfram getu hagkerfisins Landsbankinn spáir 5,5% verðbólgu í apríl Aðgerðir til höfuðs forsenduákvæði kjarasamninga Loks viðurkennir forsætisráðherra vandann » Fleiri tengdar fréttir Kjaraviðræður Sólveig klár í verkfallsaðgerðir Dómur mun falla í máli SA og VR Segir VR fara villur vegar í málinu Tímakaupið hækkaði um 17,6-19% Tímakaup opinberra starfsmanna hækkað mest » Fleiri tengdar fréttir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness, gefur lítið fyrir þá hugmynd að gera skammtímasamning til eins árs með engum launahækkunum í næstu kjarasamningum. Þá þurfi að rýna djúpt ofan í hvað sé að íslensku samfélagi. Hugmyndin um skammtímasamning til eins árs með engum launahækkunum í næstu kjarasamningum kom fram í máli Einars Sigurðssonar, stjórnarformanns Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, á aðalfundi félagsins í gær. Frétt af mbl.is Laun hækkað langt umfram getu hagkerfisins Stakk upp á sömu hugmynd árið 2024 mbl.is leitaði viðbragða Vilhjálms sem segist sjálfur hafa lagt til í kjarasamningsviðræðum 2024 að engar launahækkanir yrðu gerðar fyrsta árið. Hugmyndin hafi þó fallið í grýttan jarðveg. „Það sem ég var fyrst og fremst að hugsa þá var í raun að svæla út sannleikann. Sannleikann sem lýtur að því að það er alltaf öskrað á að launahækkanir séu rót alls hins illa, ef þannig má að orði komast, að þær séu uppsprettan að allri þessari óværu sem við erum með: verðbólgu og svo framvegis. Þannig að ég taldi að það væri dálítið klókt að gera slíkt í eitt ár og sjá í raun og veru hvernig atvinnulífið, verslun og þjónusta, ríkið og sveitarfélög myndu bregðast við slíkri hugmynd. Þetta fór ekki þannig en við hins vegar sömdum um hógværar launahækkanir,“ segir Vilhjálmur og rifjar upp að kostnaðarmatið hafi verið 4% launahækkun og hafi kostað atvinnulífið 59 milljarða. Frétt af mbl.is Leggur til 0% hækkun launa í eitt ár Frétt af mbl.is Líst vel á hugmynd Vilhjálms Birgissonar Á sér enga stoð í raunveruleikanum Í því samhengi nefnir hann að vaxtatekjur Landsbankans nemi 62 milljörðum, meira en allar þær launahækkanir sem Vilhjálmur og félagar sömdu um á einu ári. „Þannig að allt þetta tal um að launahækkanir séu að valda öllum þessum vandræðum á sér enga stoð í raunveruleikanum, að mínum dómi, einfaldlega vegna þess að stór hluti af bæði ráðstöfunartekjum heimila og reyndar fyrirtækja líka fer í að þóknast þessu fjármálakerfi. Viðskiptahagkerfið skuldar 4.600 milljarða. Heimilin skulda 3.200 milljarða. Það segir sig sjálft að þegar vaxtastigið er hér í kringum 9-10% óverðtryggðir vextir þá er bara stór hluti ráðstöfunartekna fólks að fara þarna inn. Þannig að nei, ég held að atvinnulífið og allir hafi sýnt það með afgerandi hætti þegar við sömdum til langs tíma með hófstilltum hætti síðast - þá var þetta ágæta fólk ekki tilbúið til þess að axla ábyrgð og halda hér aftur af verðlagi og styðja við að kjarasamningarnir myndu skapa þær forsendur sem þeir áttu að gera, ná niður verðbólgu, ná niður vaxtastigi. Það var enginn tilbúinn til þess nema íslenskt lágtekju- og verkafólk, sem lagði grunninn að þessu, og svo núna þegar allt er komið í skrúfuna þá á að senda íslenskt verkafólk niður til þess að skera sig sjálft úr skrúfunni. Ég segi bara já, nei takk.“ Frétt af mbl.is „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ Þörf á rótargreiningu Þá segir Vilhjálmur að þörf sé á að skoða ofan í kjölinn hvað sé að íslensku samfélagi og bendir í því samhengi á íslensku lífeyrissjóðina sem séu með 3,5% raunávöxtun. „Það eru 5.500 milljarðar sem lífeyrissjóðirnir eru með inni í íslensku hagkerfi. Við erum bara 400.000 manns. Til þess að standa undir þessari ávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna þarf 460 milljarða, miðað við þá verðbólgu sem er í dag, plús 3,5 raunávöxtun. 460 milljarðar þurfa að fara úr íslensku hagkerfi bara til að standa undir ávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna í íslensku hagkerfi. Og þetta er miklu meira heldur en sjávarútvegurinn er að skila okkur í útflutningstekjur o.s.frv. Þá áttu eftir fjármálakerfi sem er með 800 milljarða í eigið fé og þá eru menn með arðsemiskröfu á eigið fé bankanna upp á 12-14% og þar eru aðrir 110-120 milljarðar sem þarf til að standa undir þessu. Þannig það eru 5-600 milljarðar sem þarf bara til að standa undir þessu fjármálakerfi okkar. Í mínum huga er þetta bara eitthvað sem 400.000 manns geta ekki staðið undir.“ Gengur ekki lengur Vilhjálmur bendir að lokum á að allt virðist stefna í að kjarasamningar bresti en í kjarasamningum Starfsgreinasambandsins er forsenduákvæði sem kveður á um að ef verðbólgan verði yfir 4,7 prósentum í ágúst á þessu ári muni sambandið geta sagt upp kjarasamningum með endurskoðun í september. „Ég held að við ættum ekkert að útiloka það að þeir sem að öxluðu ábyrgðina síðast muni segja hingað og ekki lengra. Þetta gengur ekki lengur. Hér eru hópar í íslensku samfélagi sem tóku allt upp að 17% launahækkun á meðan verkafólkið var að semja hér um 4%. Þetta er allt svo sturlað í kringum þetta að það nær engu tali.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Laun hækkað langt umfram getu hagkerfisins Landsbankinn spáir 5,5% verðbólgu í apríl Aðgerðir til höfuðs forsenduákvæði kjarasamninga Loks viðurkennir forsætisráðherra vandann » Fleiri tengdar fréttir Kjaraviðræður Sólveig klár í verkfallsaðgerðir Dómur mun falla í máli SA og VR Segir VR fara villur vegar í málinu Tímakaupið hækkaði um 17,6-19% Tímakaup opinberra starfsmanna hækkað mest » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Eminem afi í annað sinn Myndi ekki segja að við værum komnir í toppstand Skiptir ekki miklu ef við fáum fimm á okkur Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Sigmundur Davíð lét ekki segjast Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Meirihlutinn fallinn Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Eminem afi í annað sinn Myndi ekki segja að við værum komnir í toppstand Skiptir ekki miklu ef við fáum fimm á okkur Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Við eigum hérna frábært hús á frábærum stað og sagan er djúp“ Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Meirihlutinn fallinn Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá