Innlent | mbl | 10.4.2026 | 13:50 Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Ísland, er ósáttur með efnahagsaðerðir ríkisstjórnarinnar. mbl.is/Kristinn Magnússon Guðmundur Hilmarsson [email protected] Setja bókamerki Það var þungt hljóðið í Vilhjálmi Birgissyni, formanni Starfsgreinasambands Íslands, þegar leitað var eftir viðbrögðum hans við tímabundnum efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í hádeginu. „Ég gef þessum aðgerðum enga einkunn. Það var ekkert samtal né samráð og það var ekki hlustað á tillögur sem við vorum með sem snúa að lágtekjufólkinu,“ segir Vilhjálmur í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Aðgerðirnar eru í þremur liðum. Eldsneyti á dælu verður lækkað með tímabundinni lækkun virðisaukaskatts úr 24% í 11%, verðlag á eldsneyti verður vaktað í landinu með tímabundnu lagaákvæði og fjölga á hleðslustöðvum um allt land. „Bæði Starfgreinasambandið og Efling stéttarfélag voru búin að koma þeim skilaboðum til fjármálaráðherra að við teldum vera mjög mikilvægt að þeir fjármunir sem væru til staðar og væri hægt að nota eru eyrnamerktir gagnvart því fólki sem þyrfti þess mest,“ segir Vilhjálmur í samtali við mbl.is. Vilhjálmur nefnir í því sambandi barnafólk og fólk á leigumarkaði og segir að það hefði verið skynsamara að nýta það svigrúm sem myndi skapast til þess að snúa aðgerðunum gagnvart þessu fólki. Ekki gáfuleg aðgerð „Ég er til að mynda að tala um tímabundnar barnabótagreiðslur fyrir fólk á lágum launum og markvissar aðgerðir gagnvart fólki á leigumarkaði sem hefur þurft að horfa upp á stökkbreytingu á húsaleigu. Það hefði þurft að fanga þennan hóp sem hefur farið langverst út úr þessu ástandi frekar en að smyrja þessari lækkun jafnt yfir alla algjörlega óháð efnahag. Það er ekki gáfuleg aðgerð,“ segir verkalýðsleiðtoginn á Akranesi. Vilhjálmur undrast að það skuli vera ríkisstjórn sem kennir sig við félagshyggju, réttlæti og jöfnuð sem hlusti ekki á forystumenn sem leiða lágtekjuhópana og hafa komið verst út úr ástandinu. Getur vel verið að Kristrún hafi hringt í einhverja vini sína „Samráðið er ekkert. Við fengum þessa tilkynningu um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í hádeginu. Við vissum ekkert hvað væri í þeim. Það getur vel verið að Kristrún Frostadóttir hafi hringt í einhverja vini sína í verkalýðshreyfingunni sem eru flokkssystkini hennar en hún hafði ekki samband við fólkið sem er með umboðið á bak við sig. Þessi vinnubrögð eru að mínum dómi með ólíkindum,“ segir Vilhjálmur. Vilhjálmur segist hafa hlustað á ræðu Kristrúnar á ársfundi Seðlabankans í gær og þar hafi hún sagt meðal annars að hún sé búin að gera aðilum vinnumarkaðarins það algjörlega ljóst að ríkisstjórnin hafni því að stjórnvöld efni til nýrra varanlegra ríkisútgjalda sem eru fjármunir til að höggva á hnúta í kjaradeilum á almennum vinnumarkaði. Í fyrsta sinn sem ég heyri forsætisráðherra tala með þessum hætti „Það er með ólíkindum að heyra þetta frá Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinnar sem segist vera með afar gott samband við verkalýðshreyfinguna. Þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri forsætisráðherra tala með þessum hætti um að það komi ekki til greina að aðkoma stjórnvalda til að liðka fyrir kjarasamningum heyri sögunni til. Þetta eru risatíðindi og að það komi úr þessum ranni er með ólíkindum,“ segir Vilhjálmur. Vilhjálmur segir að það sé ekki forsætisráðherra að ákveða hvort aðilar vinnumarkaðarins setjist við kjarasamningsborðið heldur sé það ákvörðun þeirra stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins hvort þau geri það. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Styrkir samtökin um 25 milljónir Grótta fær línumann frá Víkingi „Ilmurinn af kanil og vanillu er aðeins of yndislegur!“ Michael J Fox er EKKI dáinn! Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin Upplýsingagjöf „verulega áfátt“ Kynna aðgerðir í efnahagsmálum á morgun „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Mest lesið Í gær Í vikunni Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? „Það verður rautt ljós sílogandi“ Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Nýjast á mbl.is » Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Styrkir samtökin um 25 milljónir Grótta fær línumann frá Víkingi „Ilmurinn af kanil og vanillu er aðeins of yndislegur!“ Michael J Fox er EKKI dáinn! Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Styrkir samtökin um 25 milljónir Kynna aðgerðir í efnahagsmálum á morgun „Þá er eins gott að þeir hætti því strax!“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Mest lesið Í gær Í vikunni Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? „Það verður rautt ljós sílogandi“ Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða