Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Komi ekki til greina að gera eins og síðasta ríkisstjórn

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.4.2026 | 17:30 Komi ekki til greina að gera eins og síðasta ríkisstjórn Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/María Setja bókamerki Efnahagsaðgerðir þær sem ríkisstjórnarflokkarnir kynntu í gær til að hemja verðbólgu og bregðast við verðhækkunum á olíu hafa fengið misgóð viðbrögð. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, eru meðal þeirra sem gagnrýnt hafa aðgerðirnar, en þau telja ekkert samtal né samráð hafa átt sér stað og ekki hafi verið hlustað á tillögur þeirra sem snéru að lágtekjuhópi landsins. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist hafa átt í ágætum samskiptum við Vilhjálm og Sólveigu Önnu upp á síðkastið. „Við hittum þarna hóp undirfélaga ASÍ fyrir ekki svo löngu þar sem við ræddum með almennum hætti að hvaða leyti ríki og aðilar vinnumarkaðs myndu vinna saman,“ segir Kristrún við mbl.is. Frétt af mbl.is Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu „Við erum áfram með okkar plan“ Hún segir þær aðgerðir sem kynntar voru í gær vera sértækar, en ekki almennar efnahagsaðgerðir. „Við erum áfram með okkar plan í fjármálaáætlun, áfram með okkar plan í atvinnustefnu sem við lögðum fram í gær. Við erum hins vegar að stíga inn með sértækum hætti hvað varðar eldsneytisverðið því við vitum að það er hætta á því að þegar við verðum fyrir svona ytra áfalli að það smitist áfram í verðhækkanir en þessu samtali er ekkert lokið,“ segir Kristrún. „Það er ýmislegt auðvitað sem ég skil að fólk vill gera til viðbótar en eins og ég segi verður þetta núna á næstu dögum þríhliða samtal milli ASÍ, SA og síðan okkur hjá ríkinu og við erum þá fyrst og fremst að tala um frekari greiningar á launamálum, frekari greiningar á verðbólgunni og hvernig vaxtastigið hefur áhrif á ákveðin heimili.“ Bregst við ummælum Vilhjálms Birgissonar Í viðtali við mbl.is í gær sagði Vilhjálmur Birgisson að það væri með ólíkindum að heyra forsætisráðherra segjast vera með afar gott samband við verkalýðshreyfinguna. „ Þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri forsætisráðherra tala með þessum hætti um að það komi ekki til greina að aðkoma stjórnvalda til að liðka fyrir kjarasamningum heyri sögunni til. Þetta eru risatíðindi og að það komi úr þessum ranni er með ólíkindum,“ sagði hann. Frétt af mbl.is Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Komi ekki til greina Kristrún segir í svari við þessum ummælum að hún ítreki enn að það komi ekki til greina að ríkið komi inn með langvarandi varanleg ófjármögnuð vilyrði og síðan aðgerðir til þess að koma kjarasamningum saman. „Það er hins vegar munur á 20 milljarða króna pakka eins og var ítrekað raunin í tíð síðustu ríkisstjórnar sem eru ófjármögnuð varanleg útgjöld til þess að aðilar vinnumarkaðarins nái saman. Eða að ríkið komi að með sértækum aðgerðum sem eru fullfjármagnaðar og er sátt um bæði milli ASÍ og SA, “ segir hún. „Okkar skilaboð eru þessi: Ef að fólk vill fara í sértækar aðgerðir þá þarf að vera sátt um það meðal aðila vinnumarkaðarins en í grunninn megum við ekki gleyma því að kjarasamningar eru á milli aðila vinnumarkaðarins. Ríkið er ekki lykilleikmaður í því, það getur vissulega liðkað fyrir en hvernig það er gert skiptir máli. Við eigum í samtali við aðila vinnumarkaðarins en við sitjum ekki beint við kjarasamningsborðið og við ætlum ekki að fara í stóra ófjármagnaða pakka eins og síðasta ríkisstjórn fór í. Við erum hins vegar opin til samtals um afmarkaðar aðgerðir.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Icelandair lítur málið alvarlegum augum Fyrsta sinn hjá Liverpool síðan 1995 Handtekinn fyrir meint kynferðisbrot Komi ekki til greina að gera eins og síðasta ríkisstjórn Liverpool - Fulham, staðan er 2:0 Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Styrkir samtökin um 25 milljónir Ekki mælt með að barnafjölskyldur flytji í bæinn Mest lesið Í gær Í vikunni Nýtt útspil Samfylkingar Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Gul viðvörun vegna norðaustan storms eða roks Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Nýjast á mbl.is » Icelandair lítur málið alvarlegum augum Fyrsta sinn hjá Liverpool síðan 1995 Handtekinn fyrir meint kynferðisbrot Komi ekki til greina að gera eins og síðasta ríkisstjórn Liverpool - Fulham, staðan er 2:0 Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sjálfsvarnarnám ekki leiðin Myndskeið: Yfirlýsing Melaniu Trump í heild sinni Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Mest lesið Í gær Í vikunni Nýtt útspil Samfylkingar Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Gul viðvörun vegna norðaustan storms eða roks Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi

Share this article