Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fagnar 100 ára afmæli í dag og þekkir lykilinn að langlífi

Read Full Article →

Gerda M. Guðmundsson hefur búið á Íslandi frá árinu 1949, þegar hún kom hingað til lands ásamt hóp af konum frá Lubeck í Þýskalandi. Gerda sá auglýsingu Bændasamtakanna í dagblaði um að hér vantaði konur til að vinna á sveitabæjum. Hún ákvað að slá til enda aðstæðurnar erfiðar í Þýskalandi eftir stríðið. Var í fyrstu dauðhrædd á Íslandi „Einn bær sem ég kom til hann var nú skrýtinn sá bær. Það var ekki hús. Það var torfbær,“ segir Gerda. Hafðirðu séð torfbæ áður? „Nei. Og ég var dauðhrædd að vera þarna.“ Gerda vann á Hamarlandi í Reykhólasveit í eitt ár. Þar sá hún um almenn sveitastörf ásamt matseld og þvotti. Launin sín sendi hún út til fjölskyldunnar í Þýskalandi. Henni fannst margt framandi á Íslandi. „Að búa til slátur. Og hausana. Það var það vitlausasta sem ég sá í fyrstu. Að þeir borðuðu hausana. En ég fór að læra það líka og borðaði hausana með þeim.“ Flutti svo til Reykjavíkur og stofnaði heimili Leið Gerdu lá svo til Reykjavíkur þar sem hún kynntist eiginmanni sínum. Þau ferðuðust víða um heim og bjuggu um tíma bæði í Ástralíu og Þýskalandi. En hjartað leitaði oft til Þýskalands þar sem hún átti foreldra og fimm yngri bræður. „Þegar pabbi minn dó, þá var ég heima ennþá. En þegar mamma mín dó þá gat ég ekki farið. Það var allt búið.“ Hún eignaðist sex börn og á nú yfir fimmtíu afkomendur. Hún býr á Droplaugarstöðum og þar var afmælinu vel fagnað í dag. Og Gerda er með lykilinn að langlífinu. „Að halda áfram að gera það sem þú getur.“ Lykillinn að langlífi er að halda alltaf áfram, segir Gerda M. Guðmundsson sem fagnar 100 ára afmæli sínu í dag. Hún naut dagsins í faðmi sinna nánustu.

Share this article