Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

180 markaðir opnast fyrir Salt­verk

Read Full Article →

Saltverk, framleiðandi sjálfbærs handunnins flögusalt frá Vestfjörðum, tilkynnti í dag nýtt samstarf við iHerb, einn stærsta netverslunarrisa heims á sviði heilsu- og lífsstílsvara. Samstarfið tryggir að vörur Saltverks verða nú fáanlegar viðskiptavinum iHerb á 180 mörkuðum um allan heim, að því er segir í tilkynningu. „Þessi áfangi markar tímamót í alþjóðlegri sókn Saltverks. Með dreifikerfi iHerb eykst aðgengi að íslensku salti til muna, bæði í Bandaríkjunum og á öðrum lykilmörkuðum. Viðskiptavinir geta nú nálgast allt vöruúrval fyrirtækisins, þar á meðal hreint flögusalt og bragðbættar útgáfur, sem allt er framleitt með 100% endurnýjanlegri jarðvarmaorku við Ísafjarðardjúp.“ Að sögn Björns Steinars Jónssonar, stofnanda og forstjóra Saltverks, var það eftirspurn frá neytendum sem ýtti samstarfinu úr vör. „Það var iHerb sem setti sig í samband við okkur vegna þess að viðskiptavinir þeirra voru farnir að spyrja sérstaklega eftir Saltverki,“ segir Björn Steinar. „Slík eftirspurn beint frá neytendum er dýrmæt staðfesting á gæðum vörunnar. Þetta samstarf gerir milljónum manna kleift að kynnast því sem gerir íslenska saltframleiðslu einstaka.“ Auk iHerb eru vörur Saltverks fáanlegar á Saltverk.is, Amazon.com og í völdum verslunum víðs vegar um heiminn. Sjá einnig 20% tekjuvöxtur hjá Saltverki „Framleiðsluaðferð Saltverks byggir á sjálfbærri framleiðsluaðferð þar sem nýttur er hreinn sjór og heitt hveravatn til framleiðslu. Niðurstaðan er steinefnaríkt flögusalt sem nýtur mikilla vinsælda jafnt meðal heimakokka sem atvinnukokka á mörgum af fínustu veitingastöðum heims.“

Share this article