Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Felur Marinó að móta nýtt húsnæðislánakerfi

Read Full Article →

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp um nýtt húsnæðislánakerfi. Hópurinn hittist á sínum fyrsta fundi í gær. Formaður starfshópsins er Marinó G. Njálsson, fyrrum stjórnarmaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Hann viðraði þeirri hugmynd í síðasta mánuði að banna verðtryggingu á neytendalánum hvort sem þau eru til langs tíma eða skamms. „Öll lán neytenda verði nafnvaxtalán,“ skrifaði hann í færslu á Facebook. Marinó lagði jafnframt til að ríkissjóður greiði nýjum lántökum sérstakar vaxtabætur fyrstu ár lánstímans. Í sömu færslu sagði hann að einnig mætti fara dönsku leiðina, þ.e. að vera með þak á breytilega vexti. Hann sagði að svo virðist sem Ísland sé eina landið í heiminum, þar sem lánveitendur vilja á hverju ári fá hærri ávöxtun útlána en nemur verðbólgu, þó svo að vaxtatekjur/vaxtamunur þeirra sé alltaf á góðu róli. „Staðreyndin er að greiðslubyrði óverðtryggðra lána er bara fyrstu ár lánstímans hærri en af verðtryggðum lánum. Er þá miðað við að lánveitendur elti vexti Seðlabankans. Ef hægt er að lækka byrðina fyrstu ári[n], þá er engin ástæða til að ýta almenningi út í verðtryggð lán, sem gera í raun lítið annað en að skerða lífsgæði í landinu,“ skrifaði Marinó. Eiga að rýna í erlend húsnæðislánakerfi Í tilkynningu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins kemur fram að starfshópnum sé falið að kortleggja nýlegar breytingar á lánaframboði og áhrif þeirra á neytendur – og greina í kjölfarið hvort gera þurfi breytingar á löggjöf um fasteignalán til neytenda. „Þetta er gert til að stuðla að því að staða lántaka sé ekki lakari en hún var fyrir áðurnefnda vaxtadóma.“ Jafnframt er hópnum falið „að greina hvort og þá hvernig taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi með það fyrir augum að innleiða kerfi sem tryggi meira gagnsæi, sveigjanleika og fyrirsjáanleika fyrir neytendur“. Erlendar fyrirmyndir verði hafðar til hliðsjónar og rýnt í kosti og galla annarra húsnæðislánakerfa, einkum í nágrannaríkjunum. „Skipun hópsins er í samræmi við áherslur stjórnvalda í húsnæðismálum. Nýlegar breytingar á lánamarkaði síðastliðna mánuði í tengslum við vaxtadómana svokölluðu hafa undirstrikað nauðsyn þess að greina hvort koma megi á sanngjarnara og gagnsærra húsnæðislánakerfi hér á landi til lengri tíma litið,“ segir Ragnar Þór í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. „Um leið er brýnt að greina til skemmri tíma hvort gera þurfi breytingar á núverandi lagaumgjörð fasteignalána til neytenda til að tryggja neytendavernd. Þetta eru mikilvæg verkefni sem stjórnvöld vilja ná vandlega utan um.“ Auk Marinós eiga sæti í hópnum fulltrúar frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, ASÍ, BHM, BSRB, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Hagsmunasamtökum heimilanna, Landssamtökum lífeyrissjóða, Neytendasamtökunum, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Seðlabanka Íslands. Með hópnum starfar sérfræðingur á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ásamt starfshópnum í gær. © Aðsend mynd (AÐSEND)

Share this article