Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óþarfi að leita að sökudólgum verðbólgu

Read Full Article →

Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í gær í 7,5%. Verðbólga mælist 5,2% sem þýðir að forsendur kjarasamninga í haust eru í hættu. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR segir kjarahækkanir eina tólið sem verkalýðshreyfingin hafi. Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, segir nauðsynlegt að hlusta á varnaðarorð. Hætta á meira atvinnuleysi „Við höfum gjarnan farið í að leita að einhverjum sökudólgum í þessari umræðu, ég held að við mættum bara spara okkur þá umræðu akkúrat núna,“ segir Þorsteinn. „Það var reynt að fara í hófstilltari kjarasamninga síðast en áður. Það greinilega tókst ekki nægilega vel hjá okkur.“ Mestu máli skipti hvernig brugðist verði við stöðunni. „Ef við sitjum föst áfram í verðbólgu sem þessari næstu 12-18 mánuðina getum við verið að horfa hér á talsvert meira atvinnuleysi, talsvert verri stöðu á húsnæðismarkaði, bara talsvert verri stöðu fyrir almenning. Þetta er auðvitað allra tjón þegar við erum að horfa á verðtryggð lán landsmanna hækka með þessum hætti,“ segir Þorsteinn. „Okkur ber skylda til að hlusta á þau varnaðarorð sem höfð eru uppi og hvernig við getum brugðist við.“ Kreistir hópa sem búið er að kreista allt úr Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir stýrivaxtatækið eitt og sér gallað til að takast á við verðbólgu eins og hún lítur út í dag. „Það eina sem þessi stýrivaxtahækkun gerir er að kreista meira hópa sem að okkar mati er nú þegar búið að kreista allt út úr. Þá er ég að horfa á fólk með háar húsnæðisskuldir, leigjendur og barnafólk. Þessir hópar hafa borið hitann og þungann af þessari hávaxtastefnu sem hefur verið rekin hérna í þrjú ár,“ segir Halla. Þorsteinn tekur undir: „Það er alltaf tekjulægsti hópurinn sem verður langverst úti í verðbólgu, sem verður langverst úti þegar við erum að glíma við hátt vaxtastig og það er ekki síður mikilvægt þegar við erum að tala um hvernig við bætum kjör þeirra hópa að við horfum á það hvernig við getum náð utan um þetta ástand og náð verðbólguvöxtum niður.“ „Þetta er eina tækið sem við höfum“ Halla segir að launafólk í landinu, sem hafi tekið þá áhættu að semja um launahækkanir undir verðbólgu í fyrra, sé komið í þrönga stöðu. VR hefur talað á þeim nótum að það stefni allt í að kjarasamningar verði teknir upp í haust en seðlabankastjóri sagði launahækkunum aðeins verða svarað á einn hátt, með meiri stýrivöxtum. „Mér finnst þetta gróf pólitísk aðför að verkalýðshreyfingunni sem Seðlabankinn stendur fyrir þarna,“ segir Halla. „Þetta er eina tækið sem við höfum.“ Hún segir VR vera langstærsta stéttarfélag ungs fólks á Íslandi. „Þetta er fólkið sem er að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið, sem sveitarfélögin eru að svíkja með hækkunum á leikskólagjöldum, sem ríkið er að svíkja með því að draga úr barnabótum og húsnæðisbótum. Þetta er sá hópur sem ber þyngstu vaxtabyrðina, er undir mestri pressu í þjóðfélaginu, þannig að ég spyr; hvað annað eigum við að gera?“ Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Þorsteinn Víglundsson formaður Samtaka iðnaðarins voru gestir í Kastljósi í kvöld. Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Verðbólga er 5,2% og forsendur kjarasamninga í hættu. Formaður VR segir stýrivexti kreista hópa sem búið sé að kreista allt úr og kjarasamningar séu eina tæki stéttarfélaga. Formaður Samtaka iðnaðarins segir nauðsynlegt að hlusta á varnaðarorð.

Share this article