Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fellur frá viðmiðum um hámarkshæð vindmylla

  • What: A new proposal to amend laws on wind energy is introduced
  • Impact: No direct impact on IT security or regular users
Read Full Article →

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun (Rammaáætlun). Markmið frumvarpsins er að skapa skýran lagaramma um meðferð virkjunarhugmynda í vindorku innan rammaáætlunar, auk þess sem lagðar eru til breytingar á réttaráhrifum og málsmeðferð þegar virkjunarhugmyndir eru flokkaðar í verndarflokk áætlunarinnar. Ráðherra lagði frumvarpið fram á þinginu í gær en frumvarpsdrögin voru kynnt í samráðsgátt dagana 22. september til 13. október 2025. Fjöldi aðila skilaði inn umsögn um málið, þar á meðal orkufyrirtæki, hagsmunasamtök, sveitarfélög og náttúruverndarsamtök. Orkufyrirtækin og hagsmunasamtök gagnrýndu áformin um að fella vindorku undir rammaáætlun, en náttúruverndarsamtök töldu áformin ekki ganga nógu langt. Helst var tekist á um stærðarmörk vindmylla, en samkvæmt frumvarpsdrögunum var miðað við að vindorkuver með uppsett afl upp á 10 MW eða meira eða með vindmyllur sem eru 100 metrar eða hærri falli undir lögin. Breytingar hafa nú verið gerðar og miðar frumvarpið sem ráðherra lagði fram í gær við að gildissvið laganna nái einungis til virkjunarhugmynda í vindorku sem hafa 10 MW uppsett afl eða meira. Í upphaflegu frumvarpsdrögunum kom einnig fram að niðurstaða rammaáætlunar um vindorku yrði ekki bindandi við gerð skipulagsáætlana sveitarfélaga en sú tillaga hefur verið tekin út. Til að tryggja að sjónarmið sveitarfélaga komi engu að síður skýrt fram og fái sérstaklega aukið vægi í ferlinu er lagt til að bæta við ákvæði sem skyldar verkefnisstjórn rammaáætlunar til að líta sérstaklega til formlegrar afstöðu viðkomandi sveitarfélags og nálægra sveitarfélaga við mat á virkjunarhugmyndinni. Þá er nú lagt til í frumvarpinu að bæta við nýju matsviðmiði þannig í stað fortakslauss banns við vindorkunýtingu innan miðhálendislínu verði verkefnisstjórn falið að horfa sérstaklega til þess hvort virkjunarhugmynd er innan línunnar og þá einkum hvort landið þar teljist þegar raskað vegna orkuvinnslu eða orkuflutninga. Áfram verði fortakslaust bann við framkvæmdum sem raska friðlýstum minjum og helgunarsvæðum þeirra. Loks verður upptalning á viðbótarsjónarmiðum sem verkefnisstjórn skal horfa til einfölduð. Í stað upptalningar á þáttum eins og víðernum og fuglasvæðum eru nú skýr fyrirmæli um að við mat sitt skuli verkefnisstjórn, auk viðbótarsjónarmiða greinarinnar, ávallt horfa til þeirra almennu mats- og verndarsjónarmiða sem þegar eru lögfest í lögum um rammaáætlun. Er það gert til að taka af allan vafa um að almenn mats- og verndarsjónarmið laganna, sem m.a. innihalda skoðun og mat t.d. á víðernum, fuglasvæðum og nálægum friðlýstum svæðum, gildi eftir sem áður um mat á vindorku.

Share this article