Innlent | Morgunblaðið | 20.3.2026 | 16:30 Hitnar í kolunum á Alþingi Nokkuð hefur verið um að fundarhöld ílengist fram á nótt í þinginu undanfarið þrátt fyrir að lengdir fundir eigi að heyra til undantekninga. mbl.is/Eyþór Baksvið, Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Lög um greiðslu almannatrygginga samþykkt Daði vitnaði í Eisenhower Furðulegt að hlusta á skammir Segir SÍ og almenning standa „ein úti á hjarninu“ » Fleiri tengdar fréttir Töluvert háreysti varð í þingsal í fyrrakvöld og fór svo að fundi var slitið klukkan átta með nokkrum látum. Atburðarásin var sú að forseti þingsins, þá Eydís Ásbjörnsdóttir, bar á sjöunda tímanum upp ósk um lengri þingfund og sagði að fallið hefði verið frá atkvæðagreiðslu þar um. Sigríður Á. Andersen þingflokksformaður Miðflokksins mótmælti þá og bað um atkvæðagreiðslu en við það varð uppi fótur og fit meðal stjórnarliða, en mótmæli Sigríðar virtust koma þeim í opna skjöldu. Sökuð um svik Var Sigríður í kjölfarið sökuð af stjórnarliðum um að ganga á bak orða sinna. Fullyrtu þeir að þingflokksformenn hefðu sammælst um lengri fund og að fallið yrði frá atkvæðagreiðslu, tölvupóstur lægi fyrir því til staðfestingar. Þennan póst sagðist Sigríður aftur á móti ekki hafa séð, að minnsta kosti ekki fyrr en seint og síðar meir. Honum hefði ekki verið svarað og væri hún óbundin af samkomulagi annarra þingflokksformanna. Um þetta var tekist á í nokkurn tíma í fundarstjórn. Eftir nær fjörutíu mínútna tafs gerði forseti, þá var Eydís enn í stól, hlé á fundi og boðaði atkvæðagreiðslu að loknu hléi. Þegar fundur hófst á ný var Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins sestur í forsetastól. Þegar í stað var óskað eftir umræðu um fundarstjórn og varð hann við því og hélt tafsið milli stjórnarliða og stjórnarandstöðu þá áfram. Stjórnarliðar kröfðust þess að farið yrði strax í atkvæðagreiðslu og sökuðu Bergþór um að taka þátt í því sem þeir kölluðu leikrit stjórnarandstöðu, en Bergþór frábað sér þann málflutning. Þegar um tuttugu mínútur voru eftir af fundi gerði forseti 10 mínútna hlé á fundinum til þess að þingflokksformenn gætu útkljáð deilurnar. Forseta steypt af stóli Þegar fundur hófst á ný kl. 19:50 var hins vegar Ingvar Þóroddsson þingmaður Viðreisnar sestur í stól forseta, en samkvæmt heimildum blaðsins var sú breyting gerð að fyrirskipan Þórunnar Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis. Þegar í stað var óskað eftir umræðu um fundarstjórn en fljótlega stöðvaði forseti umræðurnar og hleypti ekki fleirum að og fór yfir í atkvæðagreiðsluna. Óskuðu þingmenn stjórnarandstöðu þá eftir því að taka til máls um atkvæðagreiðsluna en forseti hafnaði því og hóf atkvæðagreiðsluna. Þegar klukkan sló átta var ljóst að ekki nógu margir höfðu greitt atkvæði og var atkvæðagreiðslan því ógild og fundi slitið í mikilli óeiningu. Naumur tími til stefnu Þennan mikla hita nú má rekja til undirliggjandi tímapressu. Stutt er í páskafrí og að því loknu er stutt í að þingið fari í hlé fyrir sveitarstjórnarkosningar. Eftir sveitarstjórnarkosningar hefur verið boðað að seinni umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB fari fram, viðbúið er að sú umræða taki allt dagskrárpláss fram að sumarfríi. Stjórnarliðum er því mikið í mun að ljúka sem flestum málum fyrir þann tíma og vegna þess hefur æ oftar borið á því að þingfundir séu lengri en þingsköp gera ráð fyrir og heimilað er í undantekningartilvikum. Á hinn bóginn er það hagur stjórnarandstöðu að fleiri mál verði útistandandi þegar þjóðaratkvæðagreiðslan kemur til afgreiðslu, því það styrkir samningsstöðu þeirra þegar kemur að því að semja um þinglok í vor. Allt er þetta rót átakanna sem landsmenn urðu vitni að í fyrrakvöld í þinginu og má búast við að áfram hitni í kolunum eftir því sem tíminn verður naumari. Starfsáætlun Alþingis 5 þingfundir eftir fram að páskahléi 28. mars. 12 þingfundir eftir frá páskahléi fram að sveitarstjórnarkosningum 16. maí, þar af minnst 2 undirlagðir umræðu um fjármálaáætlun. 13 þingfundir eftir frá kosningahléi að áætlaðri þingfrestun 12. júní en líklegt þykir að þingfrestun seinki vegna umræðu um umdeilda ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Alþingi Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Lög um greiðslu almannatrygginga samþykkt Daði vitnaði í Eisenhower Furðulegt að hlusta á skammir Segir SÍ og almenning standa „ein úti á hjarninu“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Frábær árangur Guðrúnar í Suður-Afríku Segir óvini ríkisins vera sigraða Hitnar í kolunum á Alþingi Eyjólfur leggur samgönguráð niður Mohamed Salah liggur undir feldi Umræðan Fíknisjúkir í forgangi Reykjavík þarf nýja samgöngustefnu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Holtavörðuheiði enn lokuð Leikskólarnir kyndi undir skjánotkuninni Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Leiguverð þarf að hækka töluvert Mest lesið Í gær Í vikunni Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar Ryksprenging í tómum tanki Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Icelandair aflýsir tólf flugferðum Sigríður telur að sér vegið Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Nýjast á mbl.is » Frábær árangur Guðrúnar í Suður-Afríku Segir óvini ríkisins vera sigraða Hitnar í kolunum á Alþingi Eyjólfur leggur samgönguráð niður Mohamed Salah liggur undir feldi Umræðan Fíknisjúkir í forgangi Reykjavík þarf nýja samgöngustefnu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Eru að leggja Íran í rúst: Veit ekki hver stjórnar Leikskólarnir kyndi undir skjánotkuninni Náðu ekki að sinna eftirliti á staðnum vegna álags Mest lesið Í gær Í vikunni Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar Ryksprenging í tómum tanki Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Icelandair aflýsir tólf flugferðum Sigríður telur að sér vegið Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild