Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hálftíma argaþras á þingi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 23.3.2026 | 16:26 Hálftíma argaþras á þingi Nokkuð hefur verið um að fundarhöld ílengist í þinginu undanfarið. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Ætla ekki í ófjármagnaðar aðgerðir Hitnar í kolunum á Alþingi Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Lög um greiðslu almannatrygginga samþykkt Daði vitnaði í Eisenhower » Fleiri tengdar fréttir Þingmenn stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka á Alþingi tókust á í upphafi þingfundar í dag en þrætueplið var hugsanleg lengd þingfundar í ljósi stefnumóta við bændur í kjölfar setningar búnaðarþings. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók fyrstur til máls um málið er hann gerði grein fyrir atkvæði sínu í atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar. Jón sagði alla vita að í dag hafi búnaðarþing verið sett og á búnaðarþingi taki stjórnmálaflokkarnir á móti bændum úr sínum röðum. Frétt af mbl.is Hitnar í kolunum á Alþingi Jóni var nokkuð niðri fyrir „Mér finnst það vera mjög dapurt og ég man ekki eftir að það hafi áður gerst að á þeim sama degi er boðað til kvöldfundar í þinginu. Það má vel vera að ríkisstjórnarflokkarnir beri ekki meiri virðingu fyrir fólki úr sveitum landsins heldur en raun ber vitni með þessari ákvörðun en við Sjálfstæðismenn eigum erfitt með að taka þátt í þessu af því að við ætlum að hitta bændur úr okkar röðum uppi í Valhöll um kvöldmatarleytið,“ sagði Jón og var honum nokkuð niðri fyrir. Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, kvað sér næst hljóðs og sagðist binda vonir við að dagskrá á þinginu verði lokið áður en til kvöldfundar kemur. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sté þá í pontu og lýsti furðu sinni á tillögu um lengri þingfund. Sagði hann það lágmarksvirðingu fyrir bændum að Alþingi fundaði ekki á sama tíma og flokkarnir tækju á móti þeim. Frétt af mbl.is Sigríður telur að sér vegið Samhljómur um að þingmenn kæmust í móttökurnar Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, tók þá til máls og sagði málið hafa verið rætt á fundi þingflokksformanna og forseta fyrir hádegi. Sagðist hann telja ágætis samhljóm hafa verið milli allra um að reyna að haga þingstörfum með þeim hætti að þingmenn kæmust í móttökur kvöldsins, samhljómur um að reyna að koma málum áfram en á sama tíma sýna bændum virðingu. Hver þingmaðurinn á fætur öðrum fór svo í ræðustól, ýmist til að gera grein fyrir atkvæði sínu eða um fundarstjórn forseta að atkvæðagreiðslu lokinni. Sigmundur Davíð tvisvar sinnum, Guðlaugur Þór tvisvar sinnum, Jón Gunnarsson tvisvar sinnum, Guðmundur Ari, Sigmar, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Forseti hnykkti á þingsköpum Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sá sig knúna til að hnykkja á þingsköpum og umræðan var afskaplega upplífgandi og vakti vonir og trú um skilvirk og afkastamikil störf á hinu háa Alþingi. Þingmenn, sem sammála virtust um að vera í tímahraki sökum bændamóttöku, vörðu hálftíma í þetta argaþras. Þórunn Sveinbjarnardóttir í forsetastól. Hún sá sig knúna til að hnykkja á þingsköpum á þingfundi fyrir skömmu. mbl.is/Eyþór Tengdar fréttir Alþingi Ætla ekki í ófjármagnaðar aðgerðir Hitnar í kolunum á Alþingi Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Lög um greiðslu almannatrygginga samþykkt Daði vitnaði í Eisenhower » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hálftíma argaþras á þingi Ætla ekki í ófjármagnaðar aðgerðir Rekinn á Spáni Þrír komust í feitt Sigfús leiðir lista Okkar borgar Umræðan Veistu svarið? Umboð og ábyrgð í þjóðaratkvæðagreiðslu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gera ráð fyrir að halda flugáætlun Sprengingin í Fóðurblöndunni: Maðurinn á batavegi Unglingspiltur skar mann í strætó Trump frestar fyrirhuguðum árásum á Íran Mest lesið Í gær Í vikunni Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ Vegir til og frá höfuðborgarsvæðinu geta lokast Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Vara við blindbyl Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Vara við blindbyl Leiguverð þarf að hækka töluvert Mennirnir báðir íslenskir Nýjast á mbl.is » Hálftíma argaþras á þingi Ætla ekki í ófjármagnaðar aðgerðir Rekinn á Spáni Þrír komust í feitt Sigfús leiðir lista Okkar borgar Umræðan Veistu svarið? Umboð og ábyrgð í þjóðaratkvæðagreiðslu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sprengingin í Fóðurblöndunni: Maðurinn á batavegi Gera ráð fyrir að halda flugáætlun Áskoranir bænda hluti af alþjóðlegu samhengi „Erum hægt og bítandi að ná utan um þetta“ Mest lesið Í gær Í vikunni Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ Vegir til og frá höfuðborgarsvæðinu geta lokast Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Vara við blindbyl Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Vara við blindbyl Leiguverð þarf að hækka töluvert Mennirnir báðir íslenskir

Share this article