Innlent | mbl | 20.3.2026 | 22:30 Auknar heimildir til að hemja lóðabrask Heiða Björg Hilmisdóttir fór yfir húsnæðismál Reykjavíkurborgar á árlegum borgarafundi í ráðhúsinu í morgun. mbl.is/Eyþór Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Leiguverð þarf að hækka töluvert Skoða hvort taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi Beint: Opinn kynningarfundur um húsnæðismál Gæti dugað fyrir allt að 400 íbúðum Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað » Fleiri tengdar fréttir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri boðaði markvissa vinnu gegn lóðabraski í borginni á upplýsingafundi um húsnæðismál sem var haldinn var í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur. Lagði Heiða áherslu á að það væri borgin sem skipulegði lóðamál og úthlutaði lóðum, ör sala þeirra gerði ekki annað en að tefja uppbyggingu í borginni. „Þetta er árlegur fundur borgarstjóra og við vorum að fara yfir hvað hefði gerst síðasta árið, hvað væri að breytast og hvað væri fram undan,“ segir Heiða Björg í samtali við mbl.is um fundinn. Í morgun kynnti hún tíu ára húsnæðisáætlun sem hún lagði fyrir borgarráð í gær. Ákveðið jafnvægi í húsnæðismálum „Við gerðum hana opinbera á fundinum og hún gerir ráð fyrir að við séum að fara að fjölga íbúðum í Reykjavík um fimmtán til sextán þúsund á næstu tíu árum sem eru þá að meðaltali fimmtán til sextán hundruð á ári en höfum verið að fjölga um að meðaltali ellefu hundruð á ári síðasta áratug þannig að við ætlum að gefa aðeins í, Reykjavík er vinsæl borg og hingað flytja margir og við sjáum líka að nú búa færri orðið í hverri íbúð,“ segir borgarstjóri. Telur Heiða Björg að með nýju áætluninni náist ákveðið jafnvægi í húsnæðismálum borgarinnar og verði ytri aðstæður hagfelldari verði auðveldara fyrir fólk að eignast heimili. „Það skiptir miklu máli,“ segir hún. Nú sé verið að byggja töluvert í vestari hluta borgarinnar, á Hlíðarenda, Orkureit og Ártúnshöfða. „Það eru stóru uppbyggingarstaðirnir okkar og Höfðinn er að rísa, hann verður næsti stóri borgarhluti sem nú er byrjað að byggja. Fólk er byrjað að flytja inn og þarna verða þrír grunnskólar, sjö leikskólar, nýtt torg og ný menningarstofnun. Það er mjög gaman að sjá þetta byggjast upp og var mikilvægt að kynna þetta svo fólk haldi ekki að við séum bara að bíða eftir að komast upp í Keldur eða Halla,“ heldur Heiða Björg áfram. „Það er auðvitað vandamál fyrir borgina ef við skipuleggjum byggð og hún rís svo ekki,“ segir Heiða Björg af lóðabraski í borginni. Ljósmynd/Reykjavíkurborg/Róbert Reynisson Ekki okkar stærsta vandamál Á fundinum voru einnig kynntir vinningshafar í samkeppni um rammaskipulag í Höllum og fór Heiða Björg einnig yfir það á fundinum hvernig framkvæmdir við Halla hefðu verið boðnar út „sem er í fyrsta skipti á Íslandi sem heildstætt samstarf er með þeim hætti að borgin fengi innviði á móti því að afhenda byggingarrétt“, segir hún. „Nú er búið að kynna skipulagið svo við getum haldið áfram með það verkefni og eins ætlum við að auglýsa tvær lóðir undir svokölluð kjarnasamfélög þar sem fólk vill búa saman, önnur er í Breiðholti og hin á Laugavegi, rétt fyrir ofan Hlemm.“ Borgarstjóri segir allt kapp nú lagt á að mæta ólíkum þörfum fólks í borginni og er að lokum spurð hvort lóðabrask sé raunverulegt vandamál í Reykjavík. „Það er svo sem ekki okkar stærsta vandamál en við höfum fengið auknar heimildir til að grípa inn í ef fólk fer ekki strax af stað í framkvæmdir og við erum að setja það núna inn í nýja samninga. Það er auðvitað vandamál fyrir borgina ef við skipuleggjum byggð og hún rís svo ekki. Við þurfum að hafa tæki og tól til að bregðast við slíku og mér finnst mikilvægt þegar við erum að afhenda einhverjum okkar eigið land að það sé tryggt að arðurinn af því fari til samfélagsins, það er tilgangur borgarinnar að slíkt gangi hratt og vel,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri. Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Leiguverð þarf að hækka töluvert Skoða hvort taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi Beint: Opinn kynningarfundur um húsnæðismál Gæti dugað fyrir allt að 400 íbúðum Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Birti nýjar myndir af Bruce Willis Rafmagni sló út á Vestfjörðum og högg kom á kerfið Liðsfélagar Orra í tómu tjóni Auknar heimildir til að hemja lóðabrask Tilfellum fjölgar í Bretlandi: Sjaldgæft hér á landi Umræðan Fíknisjúkir í forgangi Íslenska lífeyriskerfið ein stærsta auðlind Íslands Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ryksprenging í tómum tanki Holtavörðuheiði enn lokuð Leiguverð þarf að hækka töluvert Chuck Norris látinn Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Icelandair aflýsir tólf flugferðum Sigríður telur að sér vegið Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Nýjast á mbl.is » Birti nýjar myndir af Bruce Willis Rafmagni sló út á Vestfjörðum og högg kom á kerfið Liðsfélagar Orra í tómu tjóni Auknar heimildir til að hemja lóðabrask Tilfellum fjölgar í Bretlandi: Sjaldgæft hér á landi Umræðan Fíknisjúkir í forgangi Íslenska lífeyriskerfið ein stærsta auðlind Íslands Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stormur með dimmum éljum Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Ryksprenging í tómum tanki Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Icelandair aflýsir tólf flugferðum Sigríður telur að sér vegið Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum