Innlent | Morgunblaðið | 21.3.2026 | 7:00 Vanbúið Schengen-áritanafrumvarp Björn Bjarnason mbl.is/Ómar Óskarsson Setja bókamerki Vettvangur Pistill Björns Bjarnasonar úr Morgunblaðinu Þegar þingnefndarálit og breytingartillögur við frumvarp utanríkisráðherra um vegabréfsáritanir eru skoðaðar vaknar óhjákvæmilega spurningin: Hvers vegna var frumvarpið yfirleitt lagt fram? Markmið frumvarpsins var að laða fleiri erlenda ferðamenn inn á Schengen-svæðið og auka með því tekjur ríkissjóðs. Þessi sérkennilega aðferð til að bæta hag ríkisins var alls ekki gallalaus. Það blasir við þegar álit þingnefnda birtast nú í mars. Í upphaflegri gerð frumvarpsins var lagt til að færa alla framkvæmd vegabréfsáritana frá dómsmálaráðuneyti til utanríkisráðuneytis. Breytingin er ekki tæknileg heldur snertir kjarna Schengen-samstarfsins. Vegabréfsáritanir eru órjúfanlegur hluti af landamæra- og útlendingamálum, eins og dómsmálaráðuneytið áréttar í umsögn sinni um frumvarpið. Þar með snerta þær beint öryggi ytri landamæra og innra öryggi Schengen-svæðisins. Þrátt fyrir þetta var lagt upp með að tveir ráðherrar færu með ábyrgð á sama málaflokki: annar mótaði stefnu um öryggi og landamæri, hinn tæki ákvarðanir um útgáfu áritana. Þetta fyrirkomulag hlýtur að kalla á togstreitu milli ólíkra sjónarmiða, þar sem annars vegar er horft til öryggis en hins vegar til afkasta og þjónustu. Þessi togstreita birtist skýrt í markmiðum frumvarpsins eins og þau voru sett fram. Þar var beinlínis gert ráð fyrir að auka mætti útgáfu áritana til að mæta eftirspurn og afla ríkissjóði aukinna tekna. Það er óvenjuleg aðferð nú á tímum í Schengen-samhengi. Þar hefur megináhersla síðustu ára verið á að styrkja ytri landamæri og herða eftirlit. Það er því ekki að ástæðulausu að meiri hluti utanríkismálanefndar taldi sig knúinn til að fella þetta markmið brott. Breytingartillögur meiri hlutans ná þó lengra. Sé einstaklingi sem sækir um áritun hafnað getur hann samkvæmt Schengen-reglum kært höfnunina til æðra stjórnvalds. Í frumvarpinu var ekki gert ráð fyrir sjálfstæðri kæruleið heldur að utanríkisráðuneytið færi með ákvörðun og endurskoðun mála. Nú er lagt til að skipa sérstaka úrskurðarnefnd. Breytingin sýnir að upphafleg tillaga utanríkisráðuneytisins stóðst ekki grundvallarkröfur Schengen-regluverksins. Þar var vegið að réttarstöðu umsækjenda í ósamræmi við reglurnar. Hitt er síðan óskiljanlegt hvers vegna má ekki styðjast við það kæruferli sem fyrir hendi er, einfalda það og grisja biðlista eins og nú á að gera. Meiri hluti utanríkismálanefndar treysti sér á hinn bóginn ekki til að virða alvarleg andmæli embættis ríkislögreglustjóra við ákvæði frumvarpsins um útvistun áritunarverkefna til einkaaðila. Heimildir til að fela einkaaðilum móttöku umsókna, vörslu gagna og skráningu lífkenna voru taldar of rúmar. Enn alvarlegra væri að með þessu gæti meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga færst út fyrir lögsögu Íslands og Evrópu, til ríkja þar sem hvorki giltu íslensk né evrópsk persónuverndarlög. Embættið varaði sérstaklega við hættu á „bakdyraaðgangi“ að viðkvæmum tölvukerfum íslenskra stjórnvalda og Schengen-samstarfsins. Þegar æðsta lögregluyfirvald landsins varar við slíkri hættu er ekki lengur um stjórnsýslulegt álitaefni að ræða heldur grundvallaröryggismál á Schengen-svæðinu. Við þetta bætist að bæði dómsmálaráðuneytið og ríkislögreglustjóri benda á að frumvarpið taki ekki nægilegt tillit til innleiðingar nýrra evrópskra kerfa, ETIAS og EES, sem mynda stafrænan ramma um eftirlit og öryggi á ytri landamærum. Það eitt og sér hefði átt að nægja til að fresta málinu. Minni hluti utanríkismálanefndar tekur í áliti sínu undir þessar áhyggjur og bendir á að frumvarpið sé á skjön við þá þróun sem sjá megi í nágrannalöndum, þar sem áhersla sé lögð á aukið öryggi fremur en fjölgun áritana. Þá er einnig gagnrýnt að málið hafi verið flutt án samráðs við embætti ríkislögreglustjóra og síðan rekið áfram með miklum hraða án allra nauðsynlegra umsagna. Minni hlutinn vill að málinu verði vísað frá alþingi. Þegar litið er til þess að hverfa þurfti frá meginmarkmiði frumvarpsins, breyta kærukerfi þess í grundvallaratriðum og skýra verkaskiptingu ráðherra eftir á, liggur fyrir að málið var illa úr garði gert. Við þetta bætast síðan alvarlegar athugasemdir dómsmálaráðuneytis, ríkislögreglustjóra og minni hluta nefndarinnar um öryggi, samræmi og vinnubrögð. Dómsmálaráðherra sagði í grein í Morgunblaðinu 19. mars að gripið hefði verið til aðgerða til að styrkja landamæraeftirlit, meðal annars með því að skylda flugfélög til að afhenda farþegalista. Þessi áhersla á yfirsýn og öryggi við landamæri fellur ekki að markmiðinu um að fjölga áritunum og færa framkvæmd þeirra til annars ráðuneytis. Áritanafrumvarpið er alls ekki reist á skýrum og samræmdum forsendum. Íslendingar leggja sitt af mörkum til innra öryggis í Evrópu með aðild sinni að Schengen-svæðinu, sem og til ytri landamærastjórnunar, einkum með þátttöku í Frontex, landamærastofnun Evrópu, segir í samstarfsyfirlýsingu um öryggis- og varnarmál við ESB sem utanríkisráðherra ritaði undir í Brussel 18. mars. Virðingarleysið sem utanríkisráðuneytið sýnir sjónarmiðum lögregluyfirvalda með áritunarfrumvarpinu fellur ekki að þessari yfirlýsingu. Vegna mála sem snerta landamæraöryggi og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands verður að gera þá kröfu að tillögur til breytinga séu reistar á traustum lagalegum og stjórnsýslulegum grunni með öryggi lands og þjóðar að leiðarljósi. Það á ekki við um áritunarfrumvarpið. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Haldið „svanvangs í för langa“ éljasaman útmánuðinn Vanbúið Schengen-áritanafrumvarp Málssókn á hendur Ísrael og framhald ESB-innlimunar Íslands „Ég er orðinn þreyttur á að fara í flugvél“ Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn sérstakur viðbúnaður hér Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Ryksprenging í tómum tanki Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Íslendingar ræddu við Þjóðverja um varnarmál Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Rafmagni sló út á Vestfjörðum og högg kom á kerfið Auknar heimildir til að hemja lóðabrask Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fólk er eðlilega í áfalli“ Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Nýjast á mbl.is » Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Haldið „svanvangs í för langa“ éljasaman útmánuðinn Vanbúið Schengen-áritanafrumvarp Málssókn á hendur Ísrael og framhald ESB-innlimunar Íslands „Ég er orðinn þreyttur á að fara í flugvél“ Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ryksprenging í tómum tanki Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Eru að leggja Íran í rúst: Veit ekki hver stjórnar Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Íslendingar ræddu við Þjóðverja um varnarmál Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Rafmagni sló út á Vestfjörðum og högg kom á kerfið Auknar heimildir til að hemja lóðabrask Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fólk er eðlilega í áfalli“ Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild