Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lykilsvæði í atvinnustefnu landsins

Read Full Article →

Suðurnesin standa á tímamótum. Með sterka innviði, öflugt atvinnulíf og skýra framtíðarsýn er svæðið í stakk búið til að verða eitt stærsta og öflugasta vaxtarsvæði landsins á komandi áratugum. „Við höfum lagt áherslu á þetta í umsögn okkar um atvinnustefnu stjórnvalda sem unnin er í forsætisráðuneytinu þar sem við höfum bent á mikilvægi þess að þróunarsvæðið í kringum Keflavíkurflugvöll verði skilgreint sem lykilsvæði í atvinnustefnu landsins, sérstaklega með hliðsjón af erlendri fjárfestingu og fullnýtingu þeirra tækifæra sem hér eru til staðar,“ segir Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco. „Framtíðarsýnin snýst um markvissa þróun athafna- og iðnaðarsvæða, meðal annars í tengslum við Helguvíkurhöfn, Aðaltorg og önnur lykilsvæði á Suðurnesjum. Áhersla er lögð á að kynna þessi tækifæri bæði innanlands og erlendis, laða að fjárfestingu og tryggja að svæðið í kringum flugvöllinn verði eitt af lykilsvæðum Íslands þegar kemur að alþjóðlegri samkeppni um ný störf og nýsköpun.“ Uppbygging íbúða fylgi með Pálmi segir að samhliða sé verið að vinna markvisst í skipulagsmálum vegna íbúðauppbyggingar til að vera með svokallaða „hilluvöru“, sem eru tilbúnar lóðir og svæði sem hægt er að setja strax í gang þegar innviðir, svo sem skólar og leikskólar, eru til staðar. „Hjá Kadeco vinnum við með arkitektum og hönnuðum að skipulagningu spennandi svæða fyrir bæði fjölbýli og sérbýli sem hægt verður að hrinda í framkvæmd jafnt og þétt í samstarfi við Reykjanesbæ.“ Þegar hefur verið seldur byggingarréttur á tveimur þróunarreitum á Ásbrú. Þar eru þróunaraðilar að klára skipulagsmál og undirbúa framkvæmdir og gert er ráð fyrir að uppbygging hefjist á þessum tveimur reitum í sumar. „Ásbrú er í raun kjörinn staður til þéttingar byggðar. Hér eru þegar til staðar götur, lagnir og aðrir innviðir sem upphaflega voru hannaðir fyrir mun meiri byggð en er á svæðinu í dag. Við erum því að nýta það sem fyrir er og byggja upp milli núverandi húsa og hverfa. Innviðir eru þegar til staðar og því hægt að fara hratt af stað,“ segir Pálmi. Hann segir að þróunarmöguleikarnir séu gríðarlegir. Í dag búa um 5.000 manns á Ásbrú en gert er ráð fyrir að hægt verði að byggja fyrir allt að 10.000 til viðbótar á næstu 20–25 árum. Svæðið gæti því orðið um 15.000 manna hverfi. „Til samanburðar má nefna uppbyggingu á Keldnalandinu í Reykjavík, þar sem gert er ráð fyrir 10–15.000 íbúum, svipaður skali og hér.“ Kostir svæðisins augljósir Kostir svæðisins eru augljósir þegar kemur að samgöngum en Keflavíkurflugvöllur er nánast í bakgarðinum og þaðan er stutt í allar áttir og með tvöfaldri Reykjanesbraut er um 20 mínútna akstur til Hafnarfjarðar, sem gerir Ásbrú að raunhæfum kosti fyrir þá sem vilja hagstæðara húsnæði utan höfuðborgarsvæðisins en samt í góðum tengslum við það. „Atvinnulífið á Suðurnesjum er fjölbreytt og í vexti. Þar má nefna gagnaver á borð við atNorth, þörungaframleiðslufyrirtækið Algalíf og uppbyggingu í landeldi, meðal annars hjá Samherja. Þá nýtur svæðið nálægðar við Bláa lónið og starfsemi orkufyrirtækja á borð við HS Orku, sem styrkir bæði ferðaþjónustu og orkuiðnað,“ segir Pálmi. „Á sýningunni verðum við með sameiginlegan bás með Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Isavia. Þar kynnum við ekki aðeins starfsemi Kadeco heldur einnig uppbyggingu á Suðurnesjum og tækifærin í kringum Keflavíkurflugvöll,“ segir Pálmi. „Einnig verðum við með viðburð á sýningunniþar sem farið verður sérstaklega yfir uppbyggingu á Ásbrú og önnur lykilverkefni á svæðinu,“ segir Pálmi að lokum.

Share this article