- What: Rakel Theodórsdóttir has been appointed as the regional development officer for the highlands of Árnessýsla in Iceland.
- Impact: The role aims to support innovation and community development in the region.
Innlent | Morgunblaðið | 16.2.2026 | 21:40 Tækifæri til staðar og tannhjólin snúast Þurfum meiri fjölbreytni á svæðið og að hugviti verði beitt í atvinnulífi hér, segir Rakel Theodórsdóttir. mbl.is/Sigurður Bogi Alhliða ráðgjöf til eflingar nýsköpunar og samfélags verður vinna og hlutverk Rakelar Theodórsdóttur sem á dögunum tók við starfi byggðaþróunarfulltrúa uppsveita Árnessýslu. Svæðið sem þar er undir er Grímsnes- og Grafningshreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur. Samanlagt búa um 3.900 manns á þessu svæði þar sem sannarlega er vöxtur og viðgangur í atvinnulífinu og margvísleg uppbygging á sér stað. Nauðsynlegt þykir að þeim sem eru með góða hugmynd, hvort heldur er að atvinnutækifærum eða menningarstarfi, bjóðist stuðningur og aðstoð til dæmis í gegnum stoðkerfi byggðamála eins og Rakel mun vinna að. Atvinnugreinar styðja hver aðra „Ferðaþjónustan er stór þáttur í atvinnulífinu hér,“ segir Rakel. „Hér eru fjölfarnir viðkomustaðir ferðafólks, svo sem Þingvellir, Laugarvatn, Geysir, Gullfoss, Skálholt og Þjórsárdalur. Kúnstin er að geta stýrt flæði ferðamanna og byggt upp innviði svo allir geti vel við unað. Þjónustu við ferðafólk fylgja mörg afleidd störf. Og í atvinnulífinu styður hvað annað; ferðaþjónusta, landbúnaður og garðyrkja, iðnaður og orkuframleiðsla eru stórir póstar hér í uppsveitunum. Að atvinnulíf hér sé fjölbreytt er mikilvægt og gerir samfélagið sterkara. Í því felst að nýta má ólíka þekkingu, reynslu og innviði til að byggja upp öflugt og lifandi samfélag.“ Rakel minnist þess að fyrr á tíð hafi ferðaþjónustan á heimaslóðum sínum nærri Laugarvatni verið allt öðruvísi en nú og þá fyrst og fremst verið sumarvertíð. Yfir Brúarána. Fólk og foss í einkar fallegu umhverfi. mbl.is/Eyþór Huga þarf að húsnæðismálum „Heimavistin í Menntaskólanum að Laugarvatni og í íþróttakennaraháskólanum voru hótel á sumrin. Tjaldsvæðið á Laugarvatni var fjölsótt og mikil uppbygging á sumarbústöðum. Þetta var mjög fábreytt miðað við það sem nú er. Vegurinn að Geysi og Gullfossi er fyrir neðan bæinn heima í Efstadal og ég gat fylgst með umferðinni þar sem rykið stóð upp af malarveginum. Á þeim 30 árum síðan þetta var hefur margt breyst. Ferðamannafjöldinn hefur margfaldast og hér verið byggð fjölbreytt gistiaðstaða, veitingastaðir, afþreyingarmöguleikar, baðlón og fleira,“ segir Rakel og heldur áfram: „Enda þótt mikið sé umleikis í uppsveitunum mætti fjölbreytnin klárlega vera meiri svo sem í greinum þar sem íslensku hugviti og tækni er beitt. Þá þarf að huga að húsnæðismálum, en á svæðinu býr fjöldi fólks víða að úr heiminum sem hingað kom til að vinna til dæmis á ferðamannastöðum og í garðyrkjunni; ætlaði að vera hér í skamman tíma en hefur nú fest rætur sínar á Íslandi. Í uppsveitunum eru mörg dæmi um að fólk af erlendum uppruna fjárfesti í húsnæði á svæðinu, stofni hér fjölskyldu og börnin í skólunum og íþróttastarfinu.“ Óháð þjóðerni Í Bláskógbyggð eru nú alls 1.558 íbúar og tæp 40% þeirra eru erlendir ríkisborgar. Í Hrunamannahreppi búa 976 manns og hlutfall þeirra sem frá útlöndum koma þar svipað. „Við erum öll í þessu samfélagi algjörlega óháð þjóðerni. Hér í uppsveitunum eru mörg tannhjól sem myndu ekki snúast nema fyrir tilstilli erlends vinnuafls. Vissulega getur tungumálakunnátta verið viss þröskuldur hvað varðar þátttöku þessara mögnuðu nýbúa. Ég kýs þó að horfa á málin í stærra samhengi. Stærsta áskorunin er að viðhalda íslenskunni. Ekki er nóg að starfsfólkið sem kemur hingað frá fjarlægum löndum fari á íslenskunámskeið: við hin þurfum að vera þolinmóð og gefa þeim tækifæri til að tala íslenskuna. Hvetja þau til að taka þátt og taka opnum örmum á móti þeim.“ Gróandinn á Flúðum. Þar eru bestu aðstæður til útiræktunar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sjálfbærni sé gefinn gaumur Viðvíkjandi byggðaþróun í uppsveitum Árnessýslu stendur yfir á svæðinu röð funda þar sem fólk úr tilteknum atvinnugreinum er kallað saman til skrafs og ráðagerða um stöðu og tækifæri. Í desember var haldinn fundur í Friðheimum í Bláskógabyggð – þeim vinsæla áfangastað – þar sem stjórnendur ferðaþjónustufyrirtækja í uppsveitunum komu saman og fóru yfir stöðu mála. Þá var fyrir skemmstu fundur þar sem bændur og frumframleiðendur ræddu hagsmuni landbúnaðarmatvælaframleiðslu á svæðinu. Á fundinum greindi Dóra Svavarsdóttir frá Drumbroddsstöðum í Bláskógabyggð, formaður Slow food á Íslandi, frá verkefni sem ætlað er að auka vitund fólks um góðan og hreinan mat með áherslu á uppruna hans. Þá sagði Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumeistari á veitingastaðnum Ylju í Laugarás Lagoon, frá því viðfangsefni að setja saman matarupplifun þar sem náttúra, sjálfbærni og hráefni úr héraði ráða för. „Hér er margt að gerast í landbúnaðinum og oft er talað um að uppsveitirnar séu vagga garðyrkjunnar. Eins og mál standa nú hefur sjálfbærni og fæðuöryggi sjaldan verið Íslendingum jafn mikilvægt og því þarf að gefa sérstakan gaum. Ekki nægir heldur einvörðungu að stjórnvöld tali um mikilvægi fæðuöryggis heldur þarf líka að skapa aðstæður í rekstri til að það sé raunhæft að framleiða matvæli. Til þess eru óvíða betri aðstæður en hér í uppsveitum Árnessýslu,“ segir Rakel Theodórsdóttir að síðustu. Hver er hún? Rakel Theódórsdóttir er fædd árið 1982 og er frá bænum Efstadal í Laugardal. Hún er BSc í ferðamálafræði frá HÍ með viðskiptafræði sem aukagrein og áherslu á stjórnun. Rakel starfaði lengi í upplýsingatækngeiranum, en sneri aftur heim í sveitina sína árið 2014. Hefur starfað þar við ferðaþjónustuna, jafnt landvörslu t.d. á Geysi og í Kerlingarfjöllum sem og verið markaðs- og gæðastjóri Friðheima. Tók við starfi byggðaþróunarfulltrúa seint á síðasta ári. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Chelsea og United höfðu samband við Klopp Matarmenning mótast í krafti þeirra sem taka þátt í henni Tækifæri til staðar og tannhjólin snúast Alma í Nylon á heimsfrægan „tvíbura“ Senda mat og heilbrigðisvörur til Kúbu Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Úkraínumenn fólk, ekki „tortímendur“ Lögreglan sökuð um misferli í morðmáli Tveir sinueldar á höfuðborgarsvæðinu Dregur framboð sitt til baka Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Chelsea og United höfðu samband við Klopp Matarmenning mótast í krafti þeirra sem taka þátt í henni Tækifæri til staðar og tannhjólin snúast Alma í Nylon á heimsfrægan „tvíbura“ Senda mat og heilbrigðisvörur til Kúbu Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Lögreglan sökuð um misferli í morðmáli Obama tjáir sig um myndskeiðið í fyrsta sinn Besti árangur Íslendings í 20 ár Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Dregur framboð sitt til baka Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri