Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Loka verslun Next á Íslandi Erla María Markúsdóttir Verslun Next í Kringlunni verður lokað 4. apríl. rúv / Hulda Geirsdóttir Verslun Next í Kringlunni verður lokað í næstu viku. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Next á Íslandi. Þar segir að allar vörur eru á 50 prósenta afslætti en ekki er hægt skila þeim. Next er í stóru verslunarrými á 2. hæð í Kringlunni, við hliðina á H&M. Next á Íslandi lokar 4. apríl. Skjáskot / Facebook Next hefur verið starfrækt á Íslandi um árabil. Stofnendur eru Sverrir Berg Steinarsson og Ragnheiður Anna Jónsdóttir. Verslunin lokar laugardaginn 4. apríl. Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Allt innra net lögreglunnar óvirkt í hálfan sólarhring Fjarskiptamiðstöð og allt innra net lögreglunnar var óvirkt í um hálfan sólarhring um helgina vegna bilunar í kælibúnaði í tölvusal. Lögreglumenn þurftu að notast við TETRA-talstöðvar á meðan kerfið lá niðri. Fyrir 50 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla átalin fyrir að vanrækja hlutverk sitt við rannsókn á nauðgun Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu segir embættið hafa látið hjá líða að sinna lögmætu hlutverki sínu við upphaf rannsóknar á nauðgun. Ummæli rannsóknarlögreglumanns, sem bað sakborning afsökunar í skýrslutöku, eru talin óheppileg. Fyrir 54 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Rúmenía Kærleikur, umhyggja og sköpunargáfa á alþjóðlega downs-deginum Fyrirsætur með downs-heilkenni komu fram á tískusýningu í Búkarest í Ungverjalandi í tilefni af alþjóðlega downs-deginum. Fyrir 57 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Leikjahönnuður oddviti Sósíalista í Kópavogi Sósíalistafélag Kópavogs hefur tilkynnt þrjú efstu sæti framboðslista Sósíalistaflokks Íslands í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Frestar árásum á orkuinnviði eftir gagnlegar viðræður við Írana Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk og bandarísk stjórnvöld hafa á síðustu tveimur dögum rætt um endalok stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Einn útskrifaður og annar á batavegi eftir sprengingu Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Frá vettvangi sprengingarinnar. RÚV / Ragnar Visage Einn þeirra sem slösuðust í sprengingu í Fóðurblöndunni á föstudagsmorgun er útskrifaður af Landspítalanum og annar er á batavegi. Þetta segir Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi í samtali við fréttastofu. Einn lést í sprengingunni. Guðmundur segir orsök sprengingarinnar til rannsóknar og hún muni taka nokkurn tíma. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ætla að girða fyrir Persaflóa með tundurduflum ef Trump fylgir hótunum sínum eftir Íranar og Bandaríkjamenn halda áfram að takast á um Hormússund. Um helgina hótaði Bandaríkjaforseti árásum á írönsk orkuverk ef sundið yrði ekki opnað innan tveggja sólarhringa. Íranar hóta því að loka Persaflóa ef til árasa kemur. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Hyggjast nota gróður til að draga vatnið ofan í jarðveginn Dagur vatnsins var haldinn hátíðlegur í samkomuhúsi Grundarfjarðar í gær. Fjölbreytt fræðsla um votlendi og umhverfismál var á boðstólnum ásamt skemmtun fyrir börnin. Verkefnið „blágrænar ofanvatnslausnir í þéttbýlið“ var hvatinn að hátíðinni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær N1 og Landsbankinn bætast í hluthafahóp Eyjaganga Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Markmið Eyjaganga er að draga úr óvissu varðandi framkvæmdakostnað á gerð jarðganga milli lands og Heimaeyjar. RÚV / Ólöf Ragnarsdóttir N1 og Landsbankinn hafa bæst í hóp hluthafa í Eyjagöngum ehf. Í tilkynningu segir að verkefnið hafi tekið stórt skref fram á við með innkomunni. Íslandsbanki var þegar hluthafi í félaginu og í tilkynningu segir að aðkoma bankanna tveggja sé sérstaklega jákvæð, þar sem þeir hafi verið lykilaðilar í fjármögnun Hvalfjarðarganga á sínum tíma. Þá marki aðkoma N1 tímamót þar sem fyrirtækið sjái mikil tækifæri í uppbyggingu á Suðurlandi. Til stendur að hefja rannsóknarboranir til að kanna möguleika á fastri vegtengingu milli Vestmannaeyja og meginlandsins í næsta mánuði. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Hjörtur inn í landsliðshópinn Hjörtur Hermannsson hefur verið valinn í íslenska karlalandsliðið í fótbolta. Hann kemur í stað Daníels Leó Grétarssonar sem er meiddur. Fram undan eru æfingaleikir gegn Haítí og Kanada. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Náttúra Fegursti staður á jarðarkringlunni Í Náttúran kallar er rætt við Víði Hólm Guðbjartsson sem býr í Bakkadal í Arnarfirði á Vestfjörðum, en þar er að finna fegursta stað á jarðarkringlunni að hans mati. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ríkisútvarpið Rás 1 og Rás 2 úti í Ísafjarðardjúpi og á Steingrímsfjarðarheiði Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Rás 1 og Rás 2 eru úti í Ísafjarðardjúpi, sunnan Ögurness, og á Steingrímsfjarðarheiði vegna bilunar á svæðinu. Sendastaðir RÚV sem eru niðri eru Bæir, Nauteyri og Hátungur. Ekkert útvarp næst á þessu svæði. Reynt verður að koma útsendingu í lag á miðvikudag þegar veður leyfir. Sendastaðirnir sem eru úti. RÚV Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grikkland Réttarhöld um stærsta lestarslys í sögu Grikklands 36 eru ákærðir fyrir að bera ábyrgð á versta lestarslysi í sögu Grikklands. 57 fórust í árekstri flutningalestar og farþegalestar fyrir þremur árum. Réttarhöld hefjast í dag og eru yfir 350 vitni væntanleg fyrir dóminn. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tveimur þjófum vísað úr landi Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Tveimur körlum hefur verið vísað úr landi vegna þjófnaðar. Talið er að mennirnir hafi komið til landsins til að stunda brotastarfsemi, en þeir voru handteknir örfáum dögum eftir komuna til landsins. Þýfi fannst á dvalarstað þeirra og þeir játuðu sök, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mönnunum, erlendum ríkisborgurum á þrítugs- og fertugsaldri, var jafnframt bönnuð endurkoma til Íslnads, öðrum í sjö ár og hinum í sex ár. RÚV / Sölvi Andrason Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Hýsa lærlegg aldagamals galdramanns Í um 400 ár hafa ábúendur á Loftsstöðum notið sérstakrar verndar Galdra-Ögmundar. Þau varðveita lærlegg hans í lítilli glerkistu, og svo lengi sem beinið er á jörðinni ver það þau Tyrkjaránum, sjóskaða, náttúruhamförum og hvers konar mannraunum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Flugmenn fórust í árekstri á LaGuardia-flugvelli Flugstjóri og aðstoðarflugmaður létu lífið í árekstri flugvélar og slökkvliðsbíls á LaGuardia flugvellinum við New York. Öll umferð um flugvöllinn hefur verið stöðvuð fram eftir degi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Leiðindaveður víða um land og fjöldi vega á óvissustigi Útlit er fyrir leiðindaveður víða um land með gulum viðvörunum vegna alldjúprar lægðar. Fjöldi vega um allt land verða á óvissustigi og gætu lokast með stuttum fyrirvara. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Blak Systurnar þrjár stefna saman á bikarana þrjá Fyrir rúmri viku varð HK bikarmeistari kvenna í blaki. Í liðinu eru þrjár systur sem fögnuðu titlinum saman. Við kíktum í heimsókn til systranna og fengum að kynnast þeim betur. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Alþjóðaveðurfræðistofnunin: Ójafnvægi í inn- og útstreymi varma veldur jörðinni vanda Alþjóðaveðurfræðistofnunin segir ójafnvægi ríkja í út- og innstreymi varma á jörðinni. Gróðurhúsalofttegundir í lofthjúpnum hleypi ekki hita út sem hafi skapað ójafnvægi í hitabúskap jarðarinnar um áratugaskeið. Árþúsundir taki að vinda ofan af því. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Flest heimili komin með rafmagn að nýju Kúbverjum berst rafmagn að nýju eftir allsherjarstraumrof um helgina, það þriðja í mars. Hafnbann Bandaríkjanna á olíuflutninga bítur og aðstoðarutanríkisráðherrann vonast til að því linni. Hann segir landsmenn líka viðbúna hernaðaríhlutun. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Öll flugumferð stöðvuð um LaGuardia-flugvöll í New York Markús Þ. Þórhallsson Þot Air Canada á flugbraut á LaGuardia-flugvellinum eftir áreksturinn. AP/FR172324 AP / Ryan Murphy Árekstur milli þotu Air Canada sem var í lendingu og farartækis björgunarliðs á flugbraut varð til þess að öll umferð um fjölfarinn LaGuardia-flugvöllinn við New York var stöðvuð í morgun. Slökkvilið borgarinnar staðfestir áreksturinn en hefur ekki tíundað hvort nokkur slasaðist. Almenningur er varaður við frestunum á flugi, umferðartöfum og vegalokunum auk þess sem björgunarlið verði mikið á ferðinni. Flugmálastofnun Bandaríkjanna segir afar líklegt að flugbannið vari talsverða hríð. Tafir urðu á flugi um LaGuardia í gær vegna illviðris. Fréttin var uppfærð með upplýsingum um slysið á flugvellinum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkraínsk drónaárás á hafnarborg skammt frá landamærum Finnlands Markús Þ. Þórhallsson Eldsneytistankur stendur í ljósum logum við höfnina í rússnesku borginni Primorsk, að sögn fylkisstjórans í Leningrad. Úkraínskur hermaður með vopn sem hannað er til að tortíma drónum. EPA / ARTEM DERKACHOV Slökkvistarf stendur yfir. Borgin er skammt frá landamærum Finnlands. Fylkisstjórinn segir á sjötta tug úkraínskra dróna hafa verið grandað víðs vegar um fylkið, sem hefur hingað til ekki verið skotmark í stríðinu. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkraínuforseti vonast til að Bandaríkin haldi áfram að miðla málum Úkraínuforseti vonast til að Bandaríkjastjórn vinni áfram að leiðum til að koma á samkomulagi við Rússa um stríðslok. Aðalsamningamaður Bandaríkjanna segir vel hafa gengið á tveggja daga samningafundi með Úkraínumönnum. 23. mars 2026 kl. 2:57ERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Sósíalistar halda stærstu borgum — spenna vex fyrir forsetakosningarnar næsta ár Vinstrimenn halda völdum í tveimur stærstu borgum Frakklands eftir sveitarstjórnarkosningar í gær. Flokkum lengst til hægri og vinstri gekk ekki jafnvel og þeir höfðu vonað. Kosning