Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Opna eina stærstu Lindex-verslun Evrópu á morgun

Read Full Article →

Ný verslun Lindex opnar formlega í Kringlunni á morgun, laugardaginn 16. maí. Verslunin verður staðsett í verslunarrýminu við hlið H&M þar sem Next var áður til húsa. Verslunin er 955 fermetrar að stærð sem gerir hana að einni stærstu Lindex-verslun í Evrópu. Opnunin markar jafnframt ákveðin tímamót fyrir vörumerkið á heimsvísu, en verslunin í Kringlunni er sú fyrsta sem er hönnuð í heild sinni samkvæmt nýju verslunarútliti Lindex keðjunnar. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu þar sem jafnframt segir að í dag verði sérstök foropnun í versluninni fyrir meðlimi Lindex-klúbbsins og gesti og gangandi í Kringlunni. Í byrjun árs tók S4S ehf. við sem umboðsaðili Lindex á Íslandi. Í lok febrúar var öllum Lindex-verslunum á Íslandi lokað og á sama tíma opnaði ný netverslun Lindex á vegum S4S. Undirbúningur fyrir opnun nýrra verslana hefur staðið yfir síðan þá. Gert er ráð fyrir að Lindex opni verslun í Smáralind í lok þessa mánaðar og á Akureyri síðar á árinu. „Við erum gríðarlega spennt að geta loksins tekið á móti viðskiptavinum í eina stærstu og glæsilegustu Lindex verslun Evrópu. Það hefur verið magnað að fylgjast með öllu teyminu vinna hörðum höndum, dag og nótt, til að undirbúa verslunina fyrir opnun. Við höfum fundið hversu vænt fólki þykir um Lindex vörumerkið og það gleður okkur mikið að geta boðið viðskiptavini velkomna inn í verslun Lindex á Íslandi á nýjan leik,“ segir Tinna Sigrún Pétursdóttir, markaðsstjóri S4S. „Á morgun verður blásið til opnunarhátíðar í nýju versluninni milli kl. 14:00 og 16:00. Kaffibar frá Sjöstrand verður á staðnum og léttar veitingar verða í boði ásamt blöðrum, sápukúlum og andlitsmálningu fyrir börnin. Fyrstu 40 viðskiptavinirnir sem versla fyrir 5.000 krónur eða meira fá sérstakan gjafapoka. Í tilefni opnunarinnar verður einnig 20% opnunarafsláttur fyrir þau sem eru skráð í nýja Lindex-klúbbinn,“ segir að lokum í fréttatilkynningu.

Share this article