Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

S4S tekur formlega við Lindex

Read Full Article →

S4S tók formlega við sem umboðsaðili Lindex á Íslandi í gær og hefur fyrirtækið nú opnað nýja netverslun, Lindex.is. Í tilkynningu er opnunin sögð fyrsta skrefið í uppbyggingu Lindex á Íslandi undir stjórn S4S. Sjá einnig S4S tekur við sem umboðsaðili Lindex á Íslandi Stefnt er á opnun verslana í nýjum verslunarrýmum í Kringlunni, Smáralind og á Glerártorgi á Akureyri með vorinu en undirbúningur stendur nú yfir. „Við erum afar spennt að opna Lindex.is og hefja nýjan kafla fyrir vörumerkið á Íslandi. Markmið okkar er að sameina sterkt alþjóðlegt tískuvörumerki og íslenska þjónustu á hæsta stigi,“ segir Tinna Sigrún Pétursdóttir, markaðsstjóri S4S. „Á Lindex.is bjóðum við upp á hraða og örugga þjónustu þar sem hægt er að fá pantanir afhendar samdægurs á höfuðborgarsvæðinu og innan tveggja daga á landsbyggðinni. Áhugasamir viðskiptavinir geta skráð sig í Lindex klúbbinn þar sem hægt verður að fylgjast með nýjustu fréttum og upplýsingum um tilboð og nýjar vörur.“ Fyrirtækið muni halda viðskiptavinum vel upplýstum um gang mála varðandi opnanir á nýjum verslunum og geta áhugasamir skráð sig í Lindex klúbbinn til að fylgjast með nýjustu fréttum og upplýsingum um tilboð og nýjar vörur. Á Lindex.is sé boðið upp á hraða og örugga þjónustu þar sem hægt verður að fá pantanir afhendar samdægurs á höfuðborgarsvæðinu og innan tveggja daga á landsbyggðinni. S4S ehf. rekur verslanirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers, S4S Premium Outlet, AIR og útivistarverslanir Ellingsen. Fyrirtækið rekur einnig netverslanirnar Skór.is, Ellingsen.is, Air.is og Premiumoutlet.is, ásamt því að sinna heildsölu og rekstri á dótturfélaginu Ellingsen-BRP, sem sér um tækjadeild Ellingsen.

Share this article