Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Efnahagsástandið bitnaði á sölunni

Read Full Article →

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 141 milljón króna hjá S4S-samstæðunni í fyrra. S4S rekur meðal annars Steinar Waage, AIR og Ellingsen. Þá tók fyrirtækið fyrr á árinu við sem umboðsaðili Lindex hér á landi. Til samanburðar nam EBITDA 247 milljónum árið 2024. Runólfur Sanders, sem tók á dögunum við forstjórastarfinu hjá samstæðunni, segir síðasta rekstrarár hafa verið viðburðaríkt. Afgerandi skref hafi verið tekin til að styrkja fyrirtækið til framtíðar. Salan hafi þó verið undir væntingum, sem skýrist að stórum hluta af auknum þrýstingi á ráðstöfunartekjur heimila miðað við horfur í upphafi árs. Heildartekjur samstæðunnar námu tæplega 4,7 milljörðum króna í fyrra, samanborið við yfir 5 milljarða árið áður. „Á árinu opnuðum við nýja og öfluga verslun á Glerártorgi þar sem Ellingsen, AIR og Steinar Waage eru sameinuð undir einu þaki og hafa viðtökur verið mjög góðar. Þá tryggðum við okkur umboð fyrir Lindex á Íslandi, sem er stórt skref og styrkir stöðu félagsins til framtíðar.“ Tap samstæðunnar nam 51 milljón króna á síðast ári en árið áður nam hagnaður 38 milljónum. Runólfur segir engum blöðum um það að fletta að efnahagsástandið hafi haft neikvæð áhrif á rekstrarumhverfið. „Háir vextir og verðbólga hafa þrengt að neytendum og dregið úr eftirspurn. Á sama tíma höfum við séð verulegar hækkanir á föstum kostnaði, sérstaklega launum og húsaleigu, þar sem stór hluti leigusamninga er vísitölutengdur. Þetta skapar ákveðið ósamræmi þegar samdráttur í sölu á sér stað á sama tíma og kostnaður hækkar. Við höfum þó brugðist við með markvissum aðgerðum í rekstri, sem leggja grunn að sterkari rekstri þegar eftirspurn tekur við sér á ný.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article