Í mars sl. tók S4S formlega við sem umboðsaðili Lindex á Íslandi. Til marks um vinsældir vörumerkisins hér á landi nam sala LDX19 ehf., félagsins sem var áður umboðsaðili Lindex á Íslandi, um og yfir tveimur milljörðum króna á ári hverju á tímabilinu 2021-2024. Þá nam hagnaður samanlagður hagnaður félagsins á tímabilinu 749 milljónum. Runólfur Sanders, forstjóri S4S, kveðst ekki í nokkrum vafa með að Lindex muni styrkja rekstur S4S-samstæðunnar enn frekar. „Lindex er sterkt og vel þekkt vörumerki sem fellur mjög vel að okkar rekstri. Við höfum þegar opnað netverslun og erum að opna tvær nýjar verslanir á næstu vikum, auk þess sem fleiri tækifæri eru til skoðunar. Lindex er mikilvæg viðbót við reksturinn og styður við áframhaldandi uppbyggingu samstæðunnar og frekari vöxt.“ Runólfur bendir á að S4S hafi mikla reynslu af rekstri alþjóðlegra vörumerkja á Íslandi, ásamt því að búa yfir öflugum innviðum. Sú staða, ásamt skýrri sýn á hvernig S4S getum byggt upp vörumerki Lindex hérlendis, hafi verið lykilatriði í því að umboðið endaði hjá S4S. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .