Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind

Read Full Article →

S4S hefur undirritað leigusamning við Smáralind um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Rýmið er 675 fermetrar að stærð og verður staðsett við hlið Hagkaups í Smáralind þar sem Útilíf var áður til húsa. Í tilkynningu segir að framkvæmdir á rýminu muni hefjast á næstu dögum og er stefnt á opnun í Smáralind næstkomandi maí. „Við erum afar spennt fyrir opnun nýrrar Lindex-verslunar í Smáralind í vor. Lindex hefur notið mikilla vinsælda í Smáralind í gegnum árin og byggt upp sterkan og tryggan viðskiptavinahóp sem mun eflaust gleðjast yfir því að vörumerkið haldi áfram rekstri sínum í Smáralind,“ segir Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar. Verslunin verður staðsett við hlið Hagkaups í Smáralind þar sem Útilíf var áður til húsa. © Aðsend mynd (AÐSEND) Tinna Sigrún Pétursdóttir, markaðsstjóri S4S, segist full tilhlökkunar eftir opnun á nýrri verslun en S4S opnaði einnig fyrir netverslun Lindex í síðustu viku. „Samstarfið við Smáralind hefur verið afar farsælt í gegnum árin en S4S rekur nú þegar verslanirnar Steinar Waage, Kaupfélagið og AIR í Smáralind.“

Share this article