Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Grunur um enn eitt kynferðisbrot í leikskóla

Read Full Article →

Innlent | mbl | 23.3.2026 | 14:51 Grunur um enn eitt kynferðisbrot í leikskóla Barnavernd Garðabæjar var með málið til skoðunar. Ljósmynd/Colourbox Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Meint brot gegn barni á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi er komið inn á borð kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Þetta staðfestir Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, í samtali við mbl.is. Hún getur ekki sagt til um hvort grunur sé um að starfsmaður hafi brotið gegn barni í leikskólanum eða hvort um sé að ræða eitt barn eða fleiri. Ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Barnavernd Garðabæjar hefur verið með málið til skoðunar en það kom upp í síðustu viku og voru foreldrar barna á leikskólanum boðaðir á fund í gærmorgun og þeir upplýstir um stöðuna. Frétt af mbl.is Grunur um brot á barnaverndarlögum á öðrum leikskóla Starfsemin með hefðbundum hætti Rúv greindi fyrst frá því í gær að til skoðunar væri hvort brotið hefði verið gegn barnaverndarlögum á leikskólanum og staðfesti Guðný Hrönn Antonsdóttir, samskipta- og kynningarfulltrúi Garðabæjar, það í samtali við mbl.is í gær. Hún staðfesti það svo við mbl.is í morgun að starfsemi leikskólans væri með hefðbundum hætti í dag, en vildi ekki gefa upp um það hvort einhverjum starfsmanni hefði verið vikið frá störfum vegna málsins. Krakkakot gefur sig út fyrir að vera náttúruleikskóli en um er að ræða sex deilda leikskóla með um 100 nemendum á aldrinum eins til fimm ára. Þar eru að jafnaði 28 starfsmenn. Frétt af mbl.is Gert að rannsaka mál tveggja barna af Múlaborg betur Nokkur mál á skömmum tíma Er þetta í þriðja sinn á skömmum tíma sem upp kemur mál þar sem grunur er um kynferðisbrot gegn barni á leikskóla. Í ágúst á síðasta ári var starfsmaður á leikskólanum Múlaborg handtekinn grunaður um að hafa brotið gegn börnum á leikskólanum. Brot gegn tíu börnum hið minnsta voru rannsökuð en maðurinn var svo ákærður fyrir brot gegn einu barni. Ríkissaksóknari hefur hins vegar gert lögreglu að taka upp rannsókn á brotum gegn tveimur öðrum börnum. Þá var í síðustu viku greint frá því að starfsmaður á leikskólanum Garðaseli á Akranesi væri grunaður um kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vesturlandi. Frétt af mbl.is Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Grunur um enn eitt kynferðisbrot í leikskóla Viðræður sjálfstæð uppspretta óvissu Unglingspiltur skar mann í strætó Fær 30 milljóna viðbótarframlag Carrie Anne Fleming látin 51 árs Umræðan Veistu svarið? Umboð og ábyrgð í þjóðaratkvæðagreiðslu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert LaGuardia lokaður fram eftir degi Kannast ekki við yfirlýsingar Trumps Unglingspiltur skar mann í strætó Tveir flugmenn fórust á LaGuardia-flugvelli Mest lesið Í gær Í vikunni Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Reykjanesbraut og margir vegir á óvissustigi Vegir til og frá höfuðborgarsvæðinu geta lokast „Virðist pirra Kristrúnu óskaplega“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Vara við blindbyl Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Vara við blindbyl Leiguverð þarf að hækka töluvert Mennirnir báðir íslenskir Nýjast á mbl.is » Grunur um enn eitt kynferðisbrot í leikskóla Viðræður sjálfstæð uppspretta óvissu Unglingspiltur skar mann í strætó Fær 30 milljóna viðbótarframlag Carrie Anne Fleming látin 51 árs Umræðan Veistu svarið? Umboð og ábyrgð í þjóðaratkvæðagreiðslu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gera ráð fyrir að halda flugáætlun Hóta því að beita tundurduflum í Persaflóa Trump segir allt ganga vel varðandi Íran „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ Mest lesið Í gær Í vikunni Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Reykjanesbraut og margir vegir á óvissustigi Vegir til og frá höfuðborgarsvæðinu geta lokast „Virðist pirra Kristrúnu óskaplega“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Vara við blindbyl Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Vara við blindbyl Leiguverð þarf að hækka töluvert Mennirnir báðir íslenskir

Share this article