Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM News RÚV

Hættu rannsókn á meintu kynferðisbroti á leikskóla á Flúðum

  • What: Investigation into alleged sexual abuse at a daycare in Flúðum
  • Impact: Investigation halted, no charges filed
Read Full Article →

Lögreglan á Suðurlandi hafði til rannsóknar meint kynferðisbrot á leikskóla á Flúðum í byrjun árs. Rannsókn hefur verið hætt og er enginn með réttarstöðu sakbornings. Þetta staðfestir Rúnar Steingrímsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við fréttastofu. Vísir greindi fyrst frá. „Það kom upp mál hjá lögreglunni á Suðurlandi varðandi leikskóla. Ég get staðfest það. Rannsókn hefur verið hætt og enginn er með réttarstöðu sakbornings í því máli,“ segir Rúnar. Leiða má að líkum að leikskólinn sem um ræðir sé leikskólinn Undraland á Flúðum, þar sem einungis einn leikskóli er þar starfandi. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu voru foreldrar barnanna á leikskólanum kallaðir á fund fyrr í mánuðinum þar sem þeim var greint frá því að rannsókn lögreglu væri lokið. Undanfarna mánuði hafa nokkur mál komið upp á leikskólum víða um land þar sem grunur leikur á kynferðisbroti gegn barni. Í gær var greint frá því að grunur leiki á um að brotið hafi verið gegn leikskólabarni á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi. Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, segir í samtali við fréttastofu að málið hafi ekki borist inn á borð lögreglu. Barnavernd í Garðabæ hafi málið til rannsóknar og lögregla bíði eftir upplýsingum og gögnum frá þeim. Í síðustu viku var greint frá því að starfsmaður á leikskóla á Akranesi sæti rannsókn lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot gegn leikskólabarni. Sá var handtekinn síðastliðinn mánudag en hefur verið látinn laus úr haldi. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir í samtali við fréttastofu að allt kapp sé lagt á að rannsaka málið, sem sé á viðkvæmu stigi. Þá hefur starfsmaður leikskólans Múlaborgar í Reykjavík verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn leikskólabarni .

Share this article