- What: Child education rights are being discussed
- Impact: There is concern about the enforcement of minimum education hours
Innlent | Morgunblaðið | 9.3.2026 | 10:06 Ótvíræður réttur barna brotinn Salvör segir skýrt að börn eigi að mæta í skóla á hverjum degi og fá lágmarkskennslutíma. mbl.is/Kristinn Magnússon Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Algengt virðist að lágmarkskennslutími barna sé ekki tryggður þrátt fyrir að kveðið sé á um hann í lögum. Umboðsmaður barna segir rétt barna til menntunar ótvíræðan og rammann í kringum skólaskyldu hér á landi skýran. Eðlilegt væri að tryggja ákveðinn sveigjanleika innan kerfisins svo að hægt væri að bæta upp þá skóladaga sem falla niður vegna ófyrirséðra aðstæðna á borð við lokun skólabygginga. Í 28. grein laga um grunnskóla kemur fram að lágmarksfjöldi skóladaga skuli vera 180 dagar ár hvert. Þá skal vikulegur kennslutími hvers nemanda í grunnskóla að lágmarki vera 1.200 mínútur í 1.–4. bekk, 1.400 mínútur í 5.–7. bekk og 1.480 mínútur í 8.–10. bekk. Heimilt er að víkja frá þessum lágmarkskennslutíma tímabundið en nemendum skal þá tryggð viðbótarkennsla sem nemur frávikinu innan sama skólaárs. Skólaskyldan ekki uppfyllt Síðasta haust vörpuðu Morgunblaðið og mbl.is ljósi á að dæmi væru um að grunnskólar uppfylltu ekki lögbundna skyldu um lágmarksfjölda skóladaga fyrir nemendur skólaárið sem nú líður í kennsludagatali sínu. Að auki ná margir aðrir grunnskólar aðeins að uppfylla þessi lágmarksviðmið með því að tvítelja ákveðna skóladaga, sem heimild er fyrir í reglugerð. Þá væru dæmi um að tugir kennslustunda í einstökum bekkjum á unglingastigi væru felldir niður vegna forfalla kennara án þess að haft væri sérstakt eftirlit með því og án þess að kennslan væri sérstaklega bætt upp. Þannig er í raun ekki vitað hve umfangsmikill vandinn hefur verið. Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs borgarinnar, sagði svo í viðtali við mbl.is í síðustu viku að ósennilegt væri að þeir kennsludagar sem felldir hefðu verið niður í Ölduselsskóla vegna framkvæmda á skólahúsnæðinu yrðu bættir upp með viðbótarkennslu. Salvör Nordal umboðsmaður barna leggur áherslu á að hér á landi sé skólaskylda í grunnskólum, sem þýðir að börn og ungmenni 6 til 16 ára eiga að stunda þar nám. „Það er náttúrulega alveg ótvírætt að börn hafa rétt til menntunar og síðan erum við með skýran ramma um skólaskylduna hér á landi og það ber að fara eftir honum,“ segir Salvör. Hún bætir við að það ætti að vera eftirlit með því að skólarnir uppfylli lagabundnar skyldur sínar á borð við lágmarkskennslutíma. Eins og mbl.is og Morgunblaðið hafa þó einnig fjallað ítarlega um hafa hvorki mennta- og barnamálaráðuneytið né sveitarfélög sinnt eftirlitinu með grunnskólum síðustu ár, þrátt fyrir að kveðið sé á um eftirlitsskylduna í lögum um grunnskóla. Semja þyrfti við kennara Í áðurnefndu viðtali við Stein Jóhannsson, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, sagði hann að á hverju ári félli fjöldi daga niður í íslensku skólakerfi, meðal annars vegna óveðurs eða framkvæmda á húsnæði, en að skólaárið hefði aldrei verið lengt út af slíku. Þá sagði hann að ef til stæði að bæta upp skóladaga sem felldir hefðu verið niður myndi það krefjast sérstakra samninga við kennara vegna kjarasamninga sem eru við lýði. „Það getur auðvitað alls konar komið upp en maður myndi halda að það væri eðlilegt að það væri ákveðinn sveigjanleiki í kerfinu þannig að hægt væri að bæta þennan tíma upp að einhverju leyti,“ segir Salvör um þetta. Þá bendir hún á að fleiri vísbendingar séu um að börnum sé ekki tryggð sú menntun sem þau hafi rétt á. „Við höfum haft miklar áhyggjur af börnum sem vísað er úr skóla og það eru dæmi um að barni sé vísað úr eina grunnskólanum í sveitarfélaginu. Svo höfum við líka heyrt af börnum sem eru með skerta stundatöflu miðað við önnur börn,“ segir Salvör. Umboðsmaður barna hefur frá árinu 2018 kallað eftir því að upplýsingar um börn sem sækja ekki skóla verði skrásettar með samræmdum hætti en ekkert hefur orðið af því. „Það er ekki til neitt samræmt yfirlit yfir hversu mörg börn eru ekki að sækja skóla eða eru í þessari miklu skólaforðun, en við höfum heyrt um það að börn hafi ekki verið að sækja skóla mánuðum saman,“ segir hún. „Það er skýrt í lögunum hvað löggjafinn telur, að börn eigi að mæta í skóla á hverjum degi og að þau eigi að fá lágmarkskennslutíma.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Birgitta Líf komin með nýja vinnu Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak Farþegamiðstöðin komin með nafn Erró mikils metinn í Frakklandi Instagram: Birgitta og Berglind klæddu sig eins Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flúði Gasa og býr til blóm Íranska þjóðin kjósi nýjan leiðtoga – ekki Trump Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Kröfur til nemenda á undanhaldi Feimni við að leggja fyrir heimanám Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Hitafundur í þinginu í dag Minni væntingar, minni árangur Lokun sundsins hefur mest áhrif á Kínverja Meintur níðingur í varðhaldi til 3.apríl Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Birgitta Líf komin með nýja vinnu Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak Farþegamiðstöðin komin með nafn Erró mikils metinn í Frakklandi Instagram: Birgitta og Berglind klæddu sig eins Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mojtaba Khamenei nýr leiðtogi Íran Svaðilför á Borgarfirði eystri Alltof margir fengið rangar rukkanir Myndir: Hvalreki í Kjálkafirði Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Kröfur til nemenda á undanhaldi Feimni við að leggja fyrir heimanám Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Hitafundur í þinginu í dag Minni væntingar, minni árangur Lokun sundsins hefur mest áhrif á Kínverja Meintur níðingur í varðhaldi til 3.apríl Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason